Vífilsgata 20
01-0101 · 105 Reykjavík



157 dagar á sölu
51.900.000 kr
977.401 kr/m²
Valhöll kynnir snyrtilega 2ja herbergja íbúð á miðhæð í litlu fjölbýlishúsi á vinsælum stað í Norðurmýrinni í Reykjvík. Frábær staðsetning þar sem stutt er alla verslun og þjónustu, falleg græn svæði og allt sem miðborgin hefur upp á bjóða.
Í heildina er eignin skráð 53,1 fm á stærð sem skiptist í 48,9 fm íbúð og 4,2 fm geymslu í kjallara. Til viðbótar er sameiginlegt þvottahús í kjallara.
Nánari lýsing:
Inngangur: sameiginlegur inngangur með 2.hæð sem nýtist sem hálfgerð forstofa.
Stofa: með glugga á tvo vegu og parketi á gólfi.
Baðherbergi: með með bakari með sturtuaðstöðu, glugga og flísum á gólfi.
Eldhús: með svartri innréttingu, opnum hillum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi: rúmgott með fastaskápum og parketi á gólfi.
Hússjóður:
Í dag er þessi íbúð að greiða kr. 20.877 á mánuði í hússjóð.
Um hús:
Eignin er steypt íbúðarhúsnæði, tvær hæðir og kjallari, skráð byggt árið 1941. Þak er valmaþak án kvista. Birt flatarmál er alls 142,5m² og brúttórúmmál er 507,1m³. Vífilsgata 20 myndar eitt hús á tveimur lóðum með Vífilsgötu 18 og er hlutdeild hvors húshluta fyrir sig 50%. Eignarhlutur þessarar íbúðar er 38,32% í hús og lóð á Vífilsgötu 20 (19,16% eignarhlutur í heildarhúsi).
Nánari upplýsingar veitir:
Guðrún Margrét Gísladóttir aðstoðarmaður fasteignasala í síma 616-9552 eða á netfangið gudrun@valholl.is
Snorri Björn Sturluson fasteignasali / lögfræðingur í síma 699-4407 eða á netfangið snorribs@valholl.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir



















