HÚSASJÁ

Rauðarárstígur 24

01-0001 · 105 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
21 myndir

55 m²

Stærð

1

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1943

Byggingarár

298 m²

Lóð

Garður

Geymsla

Þvottahús



31 dagar á sölu

sell

52.900.000 kr

961.818 kr/m²

Betri Stofan Fasteignasala  og Guðbjörg Guðmundsdóttir, sími 899 55333, löggiltur fasteignasali, netfang: gudbjorg@betristofan.is kynna:  Fallega og töluvert endurnýjaða 2ja herbergja íbúð á jarðhæð/kjallara í mikið endurnýjuðu húsi á frábærum stað miðsvæðis í Reyjavík. Gluggar íbúðar snúa allir frá götu inn í gróinn suðvesturgarð.

Íbúðin sem er skráð 55 fm. skiptist í forstofugang, eldhús, stofu, svefnherbergi, baðherbergi og geymslu.

Gengið er inn í parketlagðan forstofugang, með góðu fatahengi. Eldhúsið er rúmgott með nýlegri L-laga innréttingu, gott skápapláss, ljúflokanir á skúffum, innbyggð uppþvottavél, flísar á gólfi. Stofan er parketlögð. Úr stofu er gengið inn í svefnherbergið, sem er parketlagt og með fataskáp. Baðherbergið er flísalagt, gólf og veggir, góð innbyggð sturta, upphengt salerni og vaskur í innréttingu með skúffum.

Sameiginlegt þvottahús er við hlið íbúðar. Útgengt er úr þvottahúsi út í sameiginlegan garð til suð-vesturs garðurinn er fallega gróinn og með timburpalli.

Sérgeymsla íbúðar er inn af sameign, geymsla er skráð 1,3 fm. en er stærri að gólffleti þar sem hún er að hluta til undir stiga.

Húsið og íbúðin sjálf hafa fengið gott viðhald undanfarin ár.

Ytra byrði og sameign:

Húsið sjálft hefur verið töluvert yfirfarið, meðal annars endursteinað árið 2020.

Frá árinu 2017 hefur þak verið yfirfarið, ásamt þakkanti og skipt um rennum meðfram húsinu.

Einnig voru gluggar yfirfarnir og skipt um karma og/eða gler eftir þörfum.

þá var sameign einnig teppalögð og máluð.

Íbúðin sjálf hefur verið töluvert endurnýjuð meðal annars nýtt eldhús og innihurðar 2018 og baðherbergi endurnýjað 2020.

Spennandi eign í hjarta Reykjavíkur sem hlotið hefur töluvert viðhald, tilvalin fyrstu kaup.

Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg Guðmundsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8995533, tölvupóstur gudbjorg@betristofan.is.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:

1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Kort af Rauðarárstígur 24

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21