HÚSASJÁ

Grettisgata 94

01-0101 · 105 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
18 myndir

126 m²

Stærð

5

Herbergi

3

Svefnherbergi

1951

Byggingarár

265 m²

Lóð

Geymsla



43 dagar á sölu

sell

89.900.000 kr

712.361 kr/m²

LIND fasteignasala kynnir bjarta og vel skipulagða fimm herbergja íbúð í snyrtilegu fjölbýli við Grettisgötu 94 í Reykjavík. Þrjú góð svefnherbergi, tvær samliggjandi stofur, eldhús, baðherbergi og gestasnyrting. Í risi er geymsla og útleiguherbergi sem tilheyra íbúðinni. Í risi er einnig sameiginlegt eldhús og snyrting. Íbúðinni fylgir að auki lítil geymsla undir stiga í kjallara. Einungis fjórar íbúðir eru í húsinu, ein á hverri hæð. Húsið hefur fengið gott viðhald á undanförnum árum, m.a. hefur þakjárn verið endurnýjað og gluggar í íbúðinni voru endurnýjaðir fyrir nokkrum árum að frátöldum gluggum í borðstofu.

Björt og falleg eign á besta stað í miðbæ Reykjavíkur þaðan sem öll helsta þjónusta, verslanir og veitingastaðir eru í göngufæri. Úrval skóla og leikskóla í næsta nágrenni, falleg útivistarsvæði eins og Klambratún, Hljómskálagarður og Öskjuhlíð eru steinsnar frá.

Íbúð 101:

Forstofa: Parket á gólfi, innbyggður fataskápur.

Gestasnyrting: Inn af forstofu, flísar á gólfi, handlaug, salerni.

Eldhús: Dúkur á gólfi, upprunaleg innrétting, opnanlegur gluggi.

Stofa og borðstofa: Samliggjandi, falleg rennihurð aðskilur rýmin. Parket á gólfi.

Hjónaherbergi: Parket á gólfi, innbyggður fataskápur.

Svefnherbergi II: Parket á gólfi.

Svefnherbergi III: Parket á gólfi, innbyggður fataskápur.

Tvær sérgeymslur í sameign, önnur í risi (3,5 fm, gólfflötur mun stærri) og hin undir stiga í kjallara (1,7 fm, gólfflötur stærri).

Útleiguherbergi í risi (4,8 fm, gólfflötur mun stærri) með aðgengi að sameiginlegu eldhúsi og snyrtingu í sameign.

Allar nánari upplýsingar veitir:

Lára Þyri Eggertsdóttir, löggiltur fasteignasali/B.A. í lögfræði í síma 899-3335 eða lara@fastlind.is

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lind fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Kort af Grettisgata 94

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18