HÚSASJÁ

Snorrabraut 35

01-0201 · 105 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
29 myndir

96 m²

Stærð

3

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1946

Byggingarár

623 m²

Lóð

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



8 dagar á sölu

sell

78.900.000 kr

826.178 kr/m²

Sigrún Gréta hjá RE/MAX kynnir 3ja herb. íbúð á 2. hæð að Snorrabraut 35 í Reykjavík. Í kjallara er um 11 m2 herbergi í útleigu með eldunaraðstöðu. Sameiginlegt salerni og sturta fyrir það er í sameign. Íbúðin er björt með gluggum bæði út í garð og út að Snorrabraut. Út frá svefnherbergi er rúmgóðar SA-svalir. Húsið er steinsteypt og hefur verið endursteinað. Einnig hefur þakjárn verið endurnýjað. Frábær staðsetning í hjarta miðbæjarins þar sem allt er til alls og göngufæri í Sundhöll Reykjavíkur og leik- og grunnskóla.

Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / sigrun@remax.is

Eignin skiptist í forstofuhol, tvær stofur, svefnherbergi, eldhús, baðherbergi, stúdíórými og geymslu. Eignin er skráð hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 95,5 m2.

**HÉR MÁ NÁLGAST 3D MYNDBAND AF EIGNINNI, INNI- OG ÚTI. KÍKTU Í HEIMSÓKN!

*VINSAMLEGA SMELLIÐ HÉR TIL AÐ BÓKA TÍMA Í SKOÐUN ÞRIÐJUDAGINN 3. MARS.

Söluyfirlit má nálgast hér

Nánari lýsing:

Forstofa er inn af mjög rúmgóðum teppalögðum stigagangi. Innan íbúðar er komið inn á stórt parketlagt hol. Innskot er fyrir yfirhafnir.

Herbergi er mjög stórt og með innfelldum viðarfataskápum. Parket á gólfi. Útgengi er út á steyptar SA-svalir.

Stofa og borðstofa eru samliggjandi með op á milli, en hefur verið lokað með léttum vegg og er annað stofurýmið nýtt sem herbergi í dag. Hægt er að opna að nýju. Parket á gólfi.

Eldhús er með retro innréttingu á tveimur veggjum. Milli efri og neðri skápa eru flísar, sem og á gólfi. Ofn með helluborði og vifta fyrir ofan. Stæði fyrir uppþvottavél og ísskáp.

Baðherbergi er með hvítri innréttingu. Veggfestur spegill með ljósi. Baðkar með sturtu.

Geymsla/Herbergi í útleigu og er 10,7 m2. Gluggi með opnanlegu fagi. Innrétting með vaski á einum vegg.

Geymsla er sér, staðsett í kjallara. Hún er 4,4 m2.

Þvottahús er einstaklega rúmgott, staðsett í sameign í kjallara. Hver með sínar vélar. Þvottasnúrur og skolvaskur. Í þvottahúsi er einnig sturtuklefi.

Salerni í sameign fyrir útleiguherbergin í kjallara.

Auka herbergi í sameign er í eigu allra. Það herbergi er í útleigu og fara tekjur þess inn í sjóð húsfélags.

Garður er í porti aftan við hús. Grasflötur, malarplan og trjágróður. Ekið inn frá Grettisgötu.

Hjólageymsla er í læstri geymslu úti í garði (undir svölum 1. hæðar).

-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.

-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

-Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 864 0061 eða sigrun@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. Reiknast af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.

3. Lántökugjald eftir gjaldskrá lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-

Kort af Snorrabraut 35

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu