HÚSASJÁ

Hátún 4

01-0705 · 105 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
21 myndir

77 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1960

Byggingarár

4065 m²

Lóð

Garður

Lyfta

Geymsla

Þvottahús



348 dagar á sölu

sell

66.900.000 kr

865.459 kr/m²

Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali (bjarni@remax.is/s:662-6163) kynnir bjarta og vel skipulagða 3ja herbergja útsýnisíbúð á 7.hæð í lyftuhúsi hönnuðu af Sigvalda Thordarsyni við Hátún 4. Íbúðin er skráð 77,3fm skv. HMS. Svalir með glæsilegu útsýni. Sérgeymsla. Næg bílastæði. Eignin skiptist í anddyri/hol, eldhús, stofu/borðstofu, baðherbergi, tvö svefnherbergi og geymslu.

Gengið er inn í rúmgott anddyri eða hol sem skiptir íbúðinni upp, lítil geymsla og baðherbergi til vinstri við inngang. Til hægri er minna svefnherbergið. Beint inn er eldhúsið og rúmgóð stofa til hægri en úr henni er gengið til inn í stærra svefnherbergið. Gengið er úr stofunni út á svalir með glæsilegu útsýni til norð-vesturs.

Nánari lýsing:

Anddyri/Hol: Rúmgott með parket á gólfi.

Stofa: Björt og rúmgóð með fallegu útsýni, parket á gólfi, útgengt út á norð-vestur svalir með glæsilegu útsýni út á flóann.

Eldhús: Hvít innrétting með góðu skápaplássi, flísar á milli, vifta, tf.þvottavél, parket á gólfi, gluggi.

Baðherbergi: Skápainnrétting við vask, baðkar með sturtuaðstöðu, flísar á gólfi og hluta veggja.

Svefnherbergin: Tvö rúmgóð herbergi með parket á gólfum, innbyggðir fataskápar í báðum þeirra.

Geymsla: Sér geymsla fylgir íbúðinni á jarðhæð.

Sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi með þvottavél og þurrkara í eigu húsfélagsins á jarðhæð.

Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla á jarðhæð.

Næg bílastæði á bílaplani fyrir framan húsið.

Árið 2023 var skipt um glugga á austurhlið

Árið 2016 voru raf- og vatnslagnir yfirfarnar og skipt um eftir þörfum og voru framkvæmdir unnar af fagmönnum.

Vel staðsett og vel skipulögð íbúð. Staðsetning eignarinnar er með besta móti, í göngufæri við Laugardal, Borgartún og alla verslun, veitingastaði og þjónustu í miðbænum.

Allar upplýsingar um eignina veitir Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali í síma 662 6163 eða bjarni@remax.is.

Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar, sjá upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Kort af Hátún 4

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu