HÚSASJÁ

Laugavegur 145

01-0201 · 105 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
20 myndir

49 m²

Stærð

1

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1935

Byggingarár

200 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Geymsla

Þvottahús



49 dagar á sölu

sell

49.900.000 kr

1.016.293 kr/m²

Guðmundur Þór Júlíusson og Ástþór Reynir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:

Einstaklega vönduð og falleg 2ja herbergja íbúð, merkt: 201 á 2. hæð í lyftuhúsi við Laugaveg 145.

Íbúð á 2. hæð til suðurs og austurs. Skipulag eignar telur stofu, borðstofu og eldhús, baðherbergi og eitt svefnherbergi með svalir til austurs. Íbúðinni fylgir sérgeymsla í kjallara og aðgangur að sameiginlegu þvottahúsi í kjallara. Mjög er vandað til íbúðanna á allan hátt.

Bókið skoðun hjá Gumma Júl í síma 858-7410 eða með tölvupósti á netfangið gj@remax.is eða á Ástþór Reyni í síma 899-6753 eða með tölvupósti á netfangið arg@remax.is

Íbúð: 0201

Hæð: 2

Tegund: 2ja herbergja

Stærð: 49,1 m²

Geymsla: 7,8 m² merkt 0008.

Íbúðin:

Forstofa: Forstofa er með fataskáp.

Eldhús: Innrétting er frá HTH Ormsson. Tæki eru frá Electrolux.

Stofa / borðstofa: Er opin við eldhús.

Svefnherbergi: Er með fataskáp frá HTH Ormsson og útgengi á svalir til austurs.

Baðherbergi: Baðinnrétting frá HTH Ormsson. Hreinlætistæki frá Grohe eða sambærilegt. Salerni er upphengt. Gólf eru flísalögð ásamt hluta baðherbergisveggja.

Þvottahús: Er sameiginlegt í kjallara hússins.

Geymsla: Sérgeymsla er í sameign hússins merkt 0008 og 7,8 fm.

Húsið: Hluti hússins er endurgerð á eldra húsi þar sem innra skipulag hússins er breytt og hæð bætt ofan á og hinn hluti hússins er viðbygging úr forsteyptum samlokueiningum. Nýtt stigahús með pallalyftu og aðalinngang á 1. hæð og bakinngang úr garði inn í kjallara og hjólageymslu sameinar báða hluta hússins. Á hverri hæð eru tvær íbúðir í endurgerða hlutanum og ein í viðbyggingunni. Á 4. og efstu hæð hússins eru sitthvor risíbúðin. Í kjallara eru geymslur, hjólageymsla, þvottahús og inntaksrými. Íbúðum efri hæða fylgja svalir og á 1. hæð verða þrjár íbúðir með frönskum svölum. Íbúðirnar verða afhentar án megin gólfefna en baðherbergi verða flísalögð. Lítill inngarður er við baklóð hússins þar sem aðgengi er í kjallara, hjólageymslu og stigahús ásamt sorptunnuskýlum utandyra. Aðalinngangur er í nýrri viðbyggingu við austurhlið hússins. Húsið er ýmist steinað og/eða filtað og málað að utan.

Umhverfið: Laugavegur 145 er miðsvæðis og í göngufæri við alla helstu þjónustu og þá menningu sem miðbær Reykjavíkur býður uppá. Um 100m eru niður á Hlemmtorg þar sem fyrirhuguð er mikil umbylting í þeim tilgangi að stækka miðbæinn og auka menningu og afþreyingu á svæðinu. Sú breyting mun minnka almenna umferð bíla og strætisvagna við Laugaveg 145 en með fyrirhugaðri miðstöð borgarlínu mun þetta svæði verða einn helsti tengipunktur samgangna á höfuðborgarsvæðinu í framtíðinni.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir:

Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma 858-7410 eða gj@remax.is

Ástþór Reynir löggiltur fasteignasali í síma 899-6753 eða arg@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

Kort af Laugavegur 145

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20