HÚSASJÁ

Rauðarárstígur 1

01-0102 · 105 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
13 myndir

85 m²

Stærð

2

Baðherbergi

1943

Byggingarár

175 m²

Lóð

Garður



484 dagar á sölu

sell

49.900.000 kr

584.994 kr/m²

Fasteignasalan Miðborg kynnir fallegt 85,3 fm. verslunar/þjónusturými á 1. hæð að Rauðarárstíg 1 í Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 01-02, með fasteignanúmer 200-9594, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar- og sameignarréttindi.

Um er að ræða bjart, fallegt og mikið endurnýjað 56,8 fm. verslunar- eða þjónusturými með sérinngangi, ásamt tveimur samtals 28,5 fm. geymsluherbergjum með gluggum í kjallara.

Á verslunarrýminu eru miklir gluggar sem snúa að götunni. Rýmið er parketlagt og með góðri lofthæð. Stór skrifstofa eða fundarherbergi er í rýminu ásamt nýlega uppgerðu baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og glugga.  Innangengt er í sameignina og bakútgangur frá henni á baklóð til suðurs.

Stór geymsluherbergi í kjallara sem tilheyra rýminu, samtals 28,5 fm. eru bæði með glugga.  Lítil sameiginleg snyrting er í kjallara.  Herbergin þarfnast viðhalds, en talsverð rakaummerki eru í veggjum.  Rætt hefur verið á vettvangi húsfélagsins um að drena með húsinu, til að komast fyrir rakamyndnun í kjallaraveggjum.

Eignin er laus við kaupsamning!

Nánari upplýsingar veitir Björn Þorri Viktorsson hrl. og lögg. fasteignasali, í síma 894-7070, tölvupóstur bjorn@midborg.is.

Kort af Rauðarárstígur 1

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu