HÚSASJÁ

Fjölnisvegur 4

01-0101 · 101 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
34 myndir

150 m²

Stærð

1

Herbergi

3

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1930

Byggingarár

716 m²

Lóð

Garður

Svalir

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



157 dagar á sölu

sell

139.900.000 kr

935.786 kr/m²

Eignamiðlun kynnir:

Glæsileg 4ja herbergja sérhæð á einstaklega fallegum stað við Fjölnisveg í Þingholtunum, einni af fallegustu götum borgarinnar. Falleg eign með stórum garði á eftirsóknarverðum stað þar sem miðbær Reykjavíkur er í göngufæri og stutt í leikskóla, skóla og helstu þjónustu. Birt stærð er 149,5 fm og skiptist eignin í íbúð skráða 121,5 fm og bílskúr, þar sem hefur verið gerð stúdíó-íbúð, skráður 28 fm. Húsið er byggt árið 1930, bílskúr árið 1939 og viðbygging árið 1982.

Nánari lýsing:

Gengið er inn um sameiginlegan inngang frá götu, fatahengi og geymsluskápur er utan íbúðar áður en gengið er inn. Þaðan er gengið inn á gang sem tengir saman flest rými íbúðarinnar, gegnheil hnota er á gólfum og nýlegur hljóðdúkur í lofti með innfelldri lýsingu.

Eldhúsið er rúmgott með fallegri hvítri innréttingu, íslensk sérsmíði. Gegnheil hnota er á borðum. Smeg gaseldavél, ný innbyggð uppþvottavél og pláss fyrir tvöfaldan ísskáp.

Borðstofa/stofa er í samliggjandi opnu og björtu rými. Nýlega er búið að setja hljóðdúk í loft og innfellda lýsingu. Parket á gólfi. Gluggar meðfram allri suð-vestur hliðinni. Úr stofu er gengið út á hellulagða verönd sem er yfirbyggð og lokuð af með skjólvegg. Þaðan er gott aðgengi í stóran garð og á nýlega timburverönd.

Svefnherbergin eru þrjú og þar af mjög rúmgott hjónaherbergi.

Baðherbergið er glæsilegt með sandsteinsflísum á gólfi og í kringum baðkar. Sturta er við baðkar með glerskilrými. Nýlegt salerni.

Nýlega útbúið þvottahús. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Flísar á gólfi, handklæðaofn og opnanlegur gluggi.

Bílskúrinn var nýlega endurnýjaður að innan og útbúinn sem stúdíóíbúð. Íbúðin er snyrtileg, nýleg eldhúsinnrétting með steinplötu og nýlegu baðherbergi. Möguleiki á góðum leigutekjum.

Sameiginlegt þvottahús er á lóð en þar er þvottaaðstaða fyrir íbúð í bílskúr.

Hluti af bílskúr er eingöngu aðgengilegur að utanverðu og hefur verið innréttaður sem geymsla. Sér stæði fyrir framan bílskúr og tengi fyrir hleðslustöð.

Skipt var um þak á húsinu í kringum árið 1996. Skólpið í húsinu var fóðrað árið 2013. Árið 2014 var framkvæmt viðhald á viðbyggingu að utan en meðal annars var Viroc-klæðning og einangrun endurnýjuð og grind yfirfarin.

Árið 2023 var framkvæmt viðhald á innra byrði viðbyggingarinnar, hljóðdúkur settur í loft og ný innfelld lýsing sett.

Árið 2024 var farið yfir glugga í húsinu og skipt um þá sem þurfti. Einnig var farið í miklar endurbætur á garðinum, skipt um jarðveg, torf lagt á um 400 fm og timburverönd við bílskúr byggð.

Eign sem hefur fengið mikla yfirhalningu á síðustu árum.

Nánari upplýsingar veita:

Kjartan Hallgeirsson, löggiltur fasteignasali, í s:824-9093 eða kjartan@eignamidlun.is

Unnar Kjartansson, löggiltur fasteignasali, í s:867-0968 eða unnar@eignamidlun.is***

Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Kort af Fjölnisvegur 4

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð