Eiríksgata 37
03-0101 · 101 Reykjavík



460 dagar á sölu
695.000.000 kr
518.657 kr/m²
Framkvæmdasýslan - Ríkseignir (FSRE) kynnir til sölu gamla fæðingarheimilið að Eiríksgötu 37, Þorfinnsgötu 14 og 16. Um er að ræða þrjár eignir á þremur fastanúmerum skráðar sem sjúkrahús og eru staðsettar á viðskipta- og þjónustulóð. Eignirnar hafa verið sameinaðar í eina eign, reknar af Landspítala og innréttaðar sem sjúkrahús.
Fastanúmer og birt flatarmál eigna skv. HMS eru:
Eiríksgata 37, fastanúmer 200-8916, mhl. 030101 er 447 fm.
Þorfinnsgata 14, fastanúmer 200-8914, mhl. 010101 er 450 fm.
Þorfinnsgata 16, fastanúmer 200-8915, mhl. 020101 er 443 fm.
Hver eign hefur sinn inngang og líklega er möguleiki á að loka á milli aftur ef það þykir nauðsynlegt. Rómgóð og snyrtileg lóð er í kringum húsið og möguleiki á bílastæðum vestan megin við húsið. Einnig væri möguleiki á fleiri stæðum austan megin en þar eru tvö bílastæði í dag. Húsið er þrjár hæðir ásamt kjallara. Rishæðin er að hluta til undir súð. Hæðirnar eru með kerfisloftum og vöskum í flestum herbergjum. Dúkur er á öllum gólfum. Gengið er út á vestursvalir af hæðunum með útsýni að Hallgrímskirkju. Einnig eru minni svalir sem snúa í suður á 3ju hæð. Á kaffistofu á 3ju hæð er gluggar nýlegir. Á hverri hæð eru 8-14 herbergi þ.e. sjúkrastofur, skrifstofur, skurðstofur, geymslur, búningsklefar, snyrtingar og kaffistofur.
Rúmgóð sjúkralyfta er við aðalinngang að Eríksgötu 37 með tveimur inngangsleiðum ásamt flísaslögðum bílskúrsinngangi fyrir sjúkrabíla.
Rishæðin er mikið undir súð austan megin og komið að viðhaldi á þakgluggum. Þar eru 10 skrifstofur, fundarherbergi, snyrting og eldhús.
Í kjallara eru geymslur, lagerrými, tæknirými og snyrtingar ásamt búningsklefa fyrir starfsfólk. Gólfin eru lökkuð. Innangengt er á milli kjallara frá Þorfinnsgötu 14-16 og útgangar í port í báðum hlutum.
Eignin hefur fengið þokkalegt viðhald í gegnum árin og búið er að endurnýja ofna, ofnalagnir, neysluvatnslagnir, rafmagnstengla og lagnaefni. Gluggalistar, botnstykki og gler í gluggum hefur fengið einhverja endurnýjun en þarf að laga að einhverjum hluta. Rennur og niðurföll virðast vera í góðu lagi en sjáanlegt ryð er á þakjárni.
Þörf er á endurbótum á veggjum húsnæðisins að innan og þurfa áhugasamir kaupendur að kynna sér skýrslu frá Mannvit dags.12.04.2014. þar kemur fram að greinst hafi raki og mygla og lagt var til í hvaða úrbætur þyrfti að fara til að koma eigninni í gott ástand. Taka skal fram að skýrslan er 6 ára gömul og eflaust þarf að gera meira en þar kemur fram þar sem lítið hefur verið aðhafst síðan.
Framkvæmdir og endurnýjun á lögnum eru á lóðinni á vegum Reykjavíkurborgar.
Eign sem býður upp á spennandi möguleika fyrir fjárfesta eða verktaka á góðum stað í Reykjavík.
Nánari upplýsingar er hægt að nálgast hjá FSRE með því að senda tölvupóst á eignasala@fsre.is eða gera tilboð hér https://www.fsre.is/auglysingar/fasteignasala-og-leiga/
Seljandi þekkir ekki eignina umfram það sem fram kemur í opinberum gögnum og því sem hér að ofan er lýst. Því leggur seljandi ríka áherslu á að sérstakrar árvekni sé gætt við skoðun og úttekt á eigninni og veitir FSRE allan nauðsynlegan aðgang til þess.
Nánari upplýsingar er hægt að nálgast hjá FSRE með því að senda tölvupóst á eignasala@fsre.is eða gera tilboð hér Fasteignasala og leiga | FSRE
Seljandi þekkir ekki eignina umfram það sem fram kemur í opinberum gögnum og því sem hér að ofan er lýst. Því leggur seljandi ríka áherslu á að sérstakrar árvekni sé gætt við skoðun og úttekt á eigninni og veitir FSRE allan nauðsynlegan aðgang til þess.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna










































