HÚSASJÁ

Leifsgata 5

01-0102 · 101 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
28 myndir

49 m²

Stærð

1

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1933

Byggingarár

300 m²

Lóð

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



29 dagar á sölu

sell

54.900.000 kr

1.127.310 kr/m²

Guðbjörg Helga og Gylfi Jens kynna: Leifsgata 5, 101 Reykjavík.

Björt og vel skipulögð mikið endurnýjuð 2ja herbergja íbúð í rólegri götu, rétt við Landspítalann og svo gott sem í bakgarði Hallgrímskirkju. Stutt er út á stofnleiðir RVK, í almenningssamgöngur og er öll nærþjónusta í göngufæri enda rétt við Skólavörðustíg og miðborgina. Íbúðin er laus við kaupsamning.  Tilvalin fyrstu kaup. Búið er að sækja um endurmat hjá HMS, brunabótamat var hækkað og er beðið eftir útkomu á fasteignamati eftir gagngerar endurbætur á íbúðinni.

Tilvalin fyrstu kaup.

NÚVERANDI SKIPULAG SÉREIGNAR:

Hol/gangur, stofa, herbergi, baðherbergi, eldhús, sérgeymsla í kjallara.

>> SÆKTU SÖLUYFIRLIT HÉR  >> SKOÐAÐU EIGNINA BETUR Í ÞRÍVÍDD HÉR

NÁNARI LÝSING:

Fljótandi harðparket er á gólfum, flísar á baðherbergi. Hvítar hurðar.

Aðkoma er á jarðhæð sem er mitt á milli 1. hæðar og kjallara. Gengið er upp 6 þrep að íbúðinni sem er á 1. hæð til hægri.

Forstofa/ opið hol: Nýleg eldvarnarhurð er í íbúðina. Forstofan/opið hol tengir saman öll rými eignarinnar. Nýleg rafmagnstafla í forstofu.

Stofa: Björt og rúmar vel stofuhúsgögn og nett borðstofuborð. Stór og fallegur gluggi sem snýr út að Leifsgötu.

Herbergi: Rúmgott með stórum L-laga hornskáp (PAX) með drjúgu innihaldi, svo hann er með gott geymslupláss. Gluggi snýr inn í garð.

Eldhús: Endurnýjað eldhús, hvít innrétting með viðarborðplötu. Flísar eru á milli efri og neðri skápa. lýsing undir efri skápum. Gluggi með glerhillu. Keramik helluborð og bakaraofn staðsettur undir borðplötu, gufugleypir, innbyggður ísskápur með frysti. Vegghengt niðurfellanlegt borð á vegg. Búrskápur er í horni við inngang, uppgerður með svartlakkaðri hurð og gefur það eldhúsinu og íbúðinni sjarma og sál með tengingu við gamla tíma. Þar er styrking á rafmagni (viðbætur við rafmagnstöflu) og sést í nýjar lagnir sem eru þar utanáliggjandi faldar í skápnum og því vel aðgengilegar. Snilldarfrágangur með aðgengi.

Baðherbergi: Uppgert af núverandi eigendum. Ný glerhurð og gler á sturtu, endurnýjað salerni, handlaug, speglar og speglaklæddur skápur sem gefa rýminu aukna vídd. Afar vel nýttir fm. Flísar á gólfi og í sturtu.

Sérgeymsla: Er í kjallara hússins. Þar er vegghengdur gamall geymsluskápur, kalt vatn og niðurfallsrör. Íbúð er skráð 48,6 fm og þar ef er geymsla í kjallara 2,8 fm. Steypt gólf, viðarrimlar milli geymsla.

Sameign: Stigahúsið er snyrtilegt með nýlegu teppi. Sameiginlegt þvottahús í kjallara með sameiginlegum nýlegum þvottavélum og þurrkara, hjóla-og vagnageymsla með sérinngangi beint út í bakgarð þannig að það þarf ekki að fara tröppur að framanverðu, en þaðan eru nokkur þrep í kjallarann.

Um er að ræða fallega, mikið endurnýjaða og vel staðsetta eign með alla helstu þjónustu í göngufæri.

SJÁ NÁNAR ENDURBÆTUR Í SÖLUYFIRLITI

Allar upplýsingar veita:

Guðbjörg Helga, löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur s. 897 7712,  gudbjorg@remax.is

Gylfi Jens, löggiltur fasteignasali og lögmaður s. 822 5124,  gylfi@remax.is

Kort af Leifsgata 5

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28