HÚSASJÁ

Njálsgata 86

01-0101 · 101 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
26 myndir

56 m²

Stærð

1

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1944

Byggingarár

251 m²

Lóð

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



60 dagar á sölu

sell

49.900.000 kr

894.265 kr/m²

Pálsson Fasteignasala kynnir:

55,8 fm vel skipulagða 2ja herbergja íbúð á 1. hæð við Njálsgötu 86. Íbúðin er með sérinngangi frá baklóð. Í kjallara er sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi. Einnig er þar sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.

** Tvö herbergi

** Sér inngangur

Nánari upplýsingar veita:

Páll Pálsson lgf. S: 775-4000 palli@palssonfasteignasala.is

Ómar Hjaltason Astmf  7789090 omar@palssonfasteignasala.is

www.eignavakt.is

www.verdmat.is

Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

ATH: Eignin er í útleigu og eru myndir teknar áður en núverandi leigjandi flutti inn og eru myndirnar birtar til upplýsinga. Innbú og frágangur er í raun frábrugðið því sem sést á myndum.

Birt stærð eignar samkvæmt Þjóðskrá Íslands er 55,8 fm, þar af er geymsla 1,3 fm.

Nánari lýsing á eign:

Komið er inn í litla forstofu.

Baðherbergi er við forstofu, dúklagt með flísum á veggjum, upphengd innrétting með handlaug og sturta.

Tvö rúmgóð herbergi eru í íbúðinni. Þau nýtast sem stofa og svefnherbergi.

Í svefnherbergi eru tvöfaldur fataskápar og snýr glugginn inn í kyrrlátan bakgarðinn, sem er stór og hlýlegur.

Eldhús með ágætri innréttingu, flísar á milli efri og neðri skápa. Frá eldhúsi er útgengt á svalir og þaðan liggja tröppur í bakgarð hússins sem snýr í suð-vestur.

Parket á öllum gólfum nema baðherbergi.

Í kjallara hússins er 1,3 fm sér geymsla íbúðar auk geymslu uppi á lofti. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla og sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi í kjallara.

Húsið er þriggja hæða, steinsteypt og steinað að utan. Garðurinn og bakdyrainngangurinn gefur íbúðinni mikið gildi og aukið næði.

Eignin er vel staðsett á horni Njálsgötu og Snorrabrautar, stutt í samgöngur og í göngufæri við allar helstu verslanir og veitingastaði í miðbænum. Um er að ræða afar vel skipulagða eign, þar sem rýmið nýtist vel í svefnherbergi og stofu eignarinnar.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Kort af Njálsgata 86

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu