HÚSASJÁ

Njálsgata 80

01-0101 · 101 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
23 myndir

106 m²

Stærð

2

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1937

Byggingarár

214 m²

Lóð

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús

Auka íbúð



252 dagar á sölu

sell

94.900.000 kr

893.597 kr/m²

Betri Stofan Fasteignasala og Hreiðar Levý, lögg. fasteignasali kynna 106,2fm, 4ja herbergja íbúð ásamt aukaíbúð í sérstæðum skúr á baklóð. Íbúðin er skráð 81.7fm og aukaíbúð/skúr á baklóð 24.5 fm eða samtals 106,2 fm. Aukaíbúðin er í með leigjanda með ótímabundinn leigusamning. Nýjir eigendur taka yfir þann leigusamning við kaupsamning.

Íbúðin skiptist í gang, 3 rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi, samliggjandi stofu og eldhúsi. Í bakgarði er skúr sem búið er að breyta og útbúa stúdíóíbúð. Sérinngangur í aukaíbúð úr bakgarði. Mjög gott skipulag og nýtast fermetrar innan íbúðar afar vel. Ein íbúð á palli. Frábær staðsetning í miðbæ Reykjavíkur með alla þá þjónustu, verslun og afþreyingu sem hann hefur upp á að bjóða. Góð fjölskyldueign með útleigueiningu. Einnig góð eign til fjárfestingar með möguleika á mjög góðum leigutekjum.

Bókið skoðun hjá: Hreiðar Levý, lögg. fasteignasala í síma 661 - 6021, netfang: hreidar@betristofan.is

Húsið er steinsteypt, kjallari, 3.hæðir og ris með tvíhallandi þaki með kvistum. Í kjallara er þvottahús sem er í sameign íbúða.

Lóðin er 214,3 m² leigulóð. Nýr lóðarleigusamningur er frá 1.7.23 og er til 75 ára.

Eignin Njálsgata 80, 101 Reykjavík er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 200-8404, birt stærð 106.2 fm, þar af er skúr (aukaíbúð) í garði merkt 020101, skráð 24,5fm.

Staðsetning eignar er á eftirsóttum og rólegum stað í miðbæ Reykjavíkur. Nálægðin við iðandi mannlíf miðborgarinnar setur hverfið í flokk eftirsóttustu hverfa borgarinnar. Menningin blómstrar í miðborginni og það að búa í göngufæri við fjölbreytt úrval kaffi- og veitingastaða, leikhús, listasöfn og tónleikastaði býður upp á einstaka möguleika og mikil lífsgæði.

Endurbætur síðustu ár:

2016 - Þak lagfært

2021 - Hús múrviðgert og málað

2020 - Skipt um flesta glugga

Nánari lýsing:

Gangur: Komið er inn í gang frá stigapalli. Ein íbúð á palli. Pallur tengir saman flest rými íbúðar.

3 svefnherbergi: Þrjú rúmgóð svefnherbergi.

Baðherbergi: Flísar á gólfi og að hluta á veggjum. Bað með sturtu, klósett og innrétting með neðri skápum, vask og speglaskáp fyrir ofan vask.

Eldhús: Ljós innrétting með efri og neðri skápum og opnum hillum. Ofn í vinnuhæð, spanhelluborð og uppþvottavél. Opið við stofu.

Stofa: Opið við eldhús

Geymsla: Sér geymsla í sameignargangi í kjallara.

Aukaíbúð: Stendur á baklóð húss. Sér inngangur. Anddyri, baðherbergi með salerni, baði, vask og spegli fyrir ofan vask. Alrými með lítilli eldhúsinnréttingu og fataskáp.

Sameign: Snyrtileg sameign. Sameiginlegt þvottahús. Útgengt út í garð úr sameignargangi í kjallara.

Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 661- 6021, tölvupóstur hreidar@betristofan.is.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:

1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Kort af Njálsgata 80

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23