HÚSASJÁ

Njálsgata 83

01-0201 · 101 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
25 myndir

83 m²

Stærð

1

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1931

Byggingarár

214 m²

Lóð

Geymsla

Þvottahús



639 dagar á sölu

sell

69.900.000 kr

842.169 kr/m²

NADIA KATRÍN OG DOMUSNOVA KYNNA: EINSTAKLEGA SKEMMTILEG 83.FM EIGN MEÐ FALLEGUM LOFTALISTUM OG RÓSETTUM Á RÓLEGUM STAÐ Í MIÐBÆNUM. TVÖ SVEFNHERBERGI, RÚMGÓÐ STOFA. AUÐVELT ER AÐ FÆRA ELDHÚS INN Í AÐRA STOFUNA OG OPNA Á MILLI. SÉR GEYMSLA. ÞAK OG FRÁRENNSLISLAGNIR ENDURNÝJAÐAR AÐ HLUTA. LAUS VIÐ KAUPSAMNING.

Nánari upplýsingar veita:

Nadia Katrín Banine löggiltur fasteignasali / s.692 5002 / nadia@domusnova.is

Lýsing eignar:

Komið er inn í fallegan gang með fatahengi sem tengir saman öll rými íbúðarinnar. Á hægri hönd er rúmgóð stofa með parketi. Hægt er að opna á milli stofu og eins herbergisins​, en búið er að smella plötu beggja megin herbergjanna til að fela rennihurðina sem auðvelt er að fjarlægja. Tvö svefnherbergi eru nú í eigninni og er annað þeirra með rennihurð inn í stofu. Bæði herbergin eru rúmgóð með fataskáp​um.  Eldhúsið er flísalagt með dökkri innréttingu og góðum borðkrók, ​innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Baðherbergið er flísalagt með upphengdu salerni, sturtu og dökkri innréttingu með hringspegli með baklýsingu. Einstaklega falleg eign með loftalistum, gereftum og rósettum sem gefa íbúðinni fallegt yfirbragð. Í kjallara er geymsla og sameiginlegt þvottahús. Einnig fylgir eigninni lítil útigeymsla en hægt er að ganga inn í íbúðina um bakinngang. Einstaklega rúmgóð og falleg íbúð með aukinni lofthæð á rólegum stað í miðbænum.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Kort af Njálsgata 83

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25