Vitastígur 17
01-0201 · 101 Reykjavík



2 dagar á sölu
87.900.000 kr
979.933 kr/m²
Eignamiðlun kynnir:
Afar björt og smekkleg, fjögurra herbergja hæð í fallegu, steinsteyptu þríbýli í miðbænum. Íbúðin er á 2. hæð og er ein íbúð á hverri hæð. Hæðin er smekklega hönnuð með fallegum gólf- og loftlistum sem setja svip á rýmin. Hæðin er mikið endurnýjuð en m.a. hefur verið skipt um eldhús, baðherbergi uppgert og öll gólfefni og innihurðir endurnýjaðar. Tvö góð svefnherbergi og tvær stofur. Auðvelt væri að breyta borðstofu í þriðja svefnherbergið. Frábær eign fyrir fólk sem sækir í miðborgarlífið.
**Sækja söluyfirlit**
Eignin er skráð 89,7 fm og skiptist í forstofu, stofu, borðstofu, eldhús með útgengi á svalir, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Íbúðinni fylgir 4,5 fm geymsla i kjallara. Sameiginlegt þvottahús er einnig staðsett í kjallara.
Lýsing eignar:
Inngangur: Sameiginlegur inngangur að fallegri sameign.
Forstofa: Rúmgóð með góðum, djúpum skáp og parketi á gólfi.
Stofa: Mjög björt og rúmgóð með stórum gluggum og parketi á gólfi.
Borðstofa: Rúmgóð og björt með góðum glugga og parketi á gófli. Borðstofa er opin við stofu og eldhús. Auðvelt væri að breyta borðstofu í þriðja svefnherbergið.
Eldhús: Opið með fallegri innréttingu og flísum á gólfum. Útgegni er á sólríkar vestursvalir frá eldhúsi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni, innréttingu, baðkari með sturtuaðstöðu og handklæðaofni. Góður, opnanlegur gluggi.
Svefnherbergi: Bjart og rúmgott með parketi á gófli og skápum.
Herbergi: Gott herbergi með parketi og innbyggðum skáp.
Þvottahús: Sameiginlegt og staðsett í kjallara.
Geymsla: 4,5 fm geymsla fylgir íbúð í kjallara.
Framkvæmdir og viðhald:
Skólp lagað 2012.
Skipt var um alla glugga 2009.
Járn, pappi og þakrennur endurnýjað 2025. Snjógildrur settar upp á sama tíma.
Rafmagnstafla íbúðar endurnýjuð 2013
Baðherbergi endurnýjað 2013
Eldhús endurnýjað 2013. Nýir efri skápar settir upp 2020 og innrétting filmuð.
Innihurðir endurnýjaðar 2013 og filmaðar 2020. Ný eldvarnarhurð inn í íbúð sett upp 2023.
Gólfefni í eldhúsi endurnýjuð 2020.
Nánari upplýsingar veitir:
Lilja Guðmundsdóttir löggiltur fasteignasali - s. 649-3868 eða lilja@eignamidlun.is***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna






























