HÚSASJÁ

Baldursgata 13

01-0102 · 101 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
21 myndir

43 m²

Stærð

1

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1919

Byggingarár

232 m²

Lóð

Garður

Friðað

Geymsla

Þvottahús



14 dagar á sölu

sell

49.900.000 kr

1.155.093 kr/m²

LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir virkilega  bjarta og vel skipulagða 2.herbergja 43,3 m2 íbúð á 2. hæð í glæsilegu steyptu húsi við Baldurgötu 13 í miðbæ Reykjavíkur.  Samkvæmt FMR er íbúðarhlutinn 40,3 m2 ásamt tveimur geymslum. Önnur er skráð 1 m2 og hin 1,9 m2. Samtals 43,3 m2. Húsið stendur á eignarlóð.

Nánari lýsing.

Stofa með harðparketi á gólfi.

Eldhús með hvítri eldhúsinnréttingu með steini á borðum. Gert er ráð fyrir lítilli uppþvottavél og litlum  ísskáp. Span helluborð og gert er ráð fyrir viftu fyrir ofan. Harðparket á gólfi.

Baðherbergi með gráum flísum á gólfi og ljósum flísum á veggjum. Hvít innrétting með hvítum vaski og fallegum efri skápum með speglahurðum með fallegri lýsingu. Upphengt salerni og hvítum handklæðaofni. Falleg flísalögð sturta með glervegg. Opnanlegur gluggi.

Svefnherbergi með fallegum fjórföldum hvítum fataskáp.

Tvær geymslur fylgja eigninni .

Geymsla (1) notuð sem þvottahús. Tengi bæði fyrir þvottavél og þurrkara. Skráð 1,9 m2

Geymsla (2) skráð 1 m2. En gólffermeterar eru mun fleiri.

Endurbætur síðusta áratuginn

* Allt rafmagn endurnýjað í íbúð ásamt rafmagnstöflu í sameign.

* Ný gólfefni í íbúð ásamt innréttingum, hurðum og tækjum.

* Allt endurnýjað á baðherbergi.

* Gluggar og gler endurnýjað

* Ofnar og danfoss kranar.

* Skolp og drenlögn endurnýjuð

* Forhitari er á neysluvatni.

* Málning á útveggjum (að frátöldum þeim sem eru klæddir), gluggum og útihurðum, 2025. Lagfæring á múr á stiga upp að inngangi, 2025.

Einnig er sameiginleg hjólageymsla. Fyrir nokkrum árum var sameiginlegur garður allur tekinn í gegn. Falleg aðkoma er af eigninni sem snýr út að Óðinsgötu.  Eignin er frábærlega vel staðsett  með tilliti til allrar almennrar þjónustu og alls sem miðbærinn hefur upp á að bjóða.  Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is

Kort af Baldursgata 13

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð