HÚSASJÁ

Óðinsgata 20B

01-0101 · 101 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
24 myndir

67 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1928

Byggingarár

139 m²

Lóð

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



270 dagar á sölu

sell

64.900.000 kr

975.940 kr/m²

LANDMARK fasteignamiðlun kynnir:

Bjarta og fallega þriggja herbergja íbúð við Óðinsgötu 20B í hjarta miðbæjarins. Íbúðin er björt og opin, með tveimur rúmgóðum svefnherbergjum, baðherbergi með glugga og sérgeymslu í kjallara. Stutt er í miðbæinn og í alla helstu verslun, þjónustu, menningu og veitingastaði.

Fæst afhent fljótlega!

✅ Björt og opin íbúð með tveimur svefnherbergi

✅ Eldhús með gaseldavél og tengi fyrir uppþvottavél

✅ Baðherbergi með sturtu og glugga

✅ Sérgeymsla í kjallara og sameiginlegt þvottahús

✅ Frábær staðsetning í miðbæ Reykjavíkur

Eignin skiptist í:

Alrými með stofu og eldhúsi, tvö svefnherbergi, baðherbergi og geymslu. Skipulagi íbúðar hefur verið breytt frá samþykktri teikningu. Baðherbergi hefur verið fært frá miðju alrýmis þangað sem eldhús er á teikningu.

Nánari lýsing:

Alrými: Opið og bjart með eldhúsi, borðstofu og stofu í einu opnu rými, flísar á gólfi. Útgengi á svalir.

Eldhús: Dökk innrétting á einum vegg. stór eldavél með bakarofni og gashelluborði. Tengi fyrir uppþvottavél.

Svefnherbergi: Tvö svefnherbergi, annað með fataskáp. Flísalögð gólf.

Baðherbergi: Með upphengdu salerni, baðinnréttingu og sturtu.

Svalir: Skjólsælar norð-vestur svalir.

Geymsla: Sérgeymsla í kjallara fylgir eigninni.

Hita og þvottaherbergi er í kjallara.

Sameiginlegur garður.

Staðsetning:

Óðinsgata 20B er á rólegum og eftirsóttum stað í Þingholtunum í miðborg Reykjavíkur, steinsnar frá Hallgrímskirkju, Laugavegi, Hljómskálagarðinum, tjörninni ofl.

Viðhald:

2007 - Íbúðin endurnýjuð að innan af fyrri eiganda.

2017 - Skipt um alla glugga

2023 - Húsið drenað að hluta og settur nýr brunnur.

Sækja HÉR söluyfirlit samstundis

Hafðu samband fyrir nánari upplýsingar og skoðun:

Júlíus Jóhannsson, löggiltur fasteignasali – 823-2600 / julius@landmark.is

Monika Hjálmtýsdóttir, löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur – 823-2800 / monika@landmark.is

Láttu okkur sjá um söluna fyrir þig – við veitum þér faglega söluráðgjöfSkoðunar- og aðgæsluskylda:

Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:

Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:

1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.

3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.

3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.

3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK

Pantaðu frítt söluverðmat

Kort af Óðinsgata 20B

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu