HÚSASJÁ

Bjargarstígur 16

01-0101 · 101 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
54 myndir

162 m²

Stærð

7

Herbergi

5

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1914

Byggingarár

73 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Friðað

Þvottahús

Auka íbúð



233 dagar á sölu

sell

129.000.000 kr

795.805 kr/m²

FRÁBÆR STAÐSETNING - TVÆR ÍBÚÐIR!

Glæsilegt sérbýli í 101 Rvk, með aukaíbúð á jarðhæð, Grill-sólpallur og sér bílastæði undir húsinu - Eignarlóð.

Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er birt flatarmál eignarinnar 162,1 fm.

Eignin hefur að geyma fjögur svefnherbergi, tvöfalda stofu á miðhæð þar sem eldhúsið er opið í stofurnar. Sér lítil íbúð er á jarðhæð með sérinngangi. Frábær sólpallur og einkabílastæði í lokuðu porti.

- Tveir inngangar eru í húsið, bæði frá götunni og svo að baka til.

Gengið er inn úr bakgarði í aðalrými hússins, þar sem sólpallurinn er. Stofurnar eru rúmgóðar, parketlagðar og er eldhúsið opið inn í stofuna, í eldhúsinu er mikið vinnupláss. Á efri hæðinni eru þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Sér lítil íbúð er svo á jarðhæðinni með einu svefnherbergi.

Svenherbergisálma: Upprunalegar gólffjalir á gólfum, þrjú góð svefnherbergi og gott skápapláss. Á baðherbergi er baðkar með sturtu.

Eldhús: Parket, falleg innrétting með góðu skápaplássi, gaseldavél og mikið vinnupláss.

Stofur: Miðhæðin er öll parketlögð með gegnheilu eikarparketi, stofurnar eru rúmgóðar og útgengt út á sólpall.

Þvottahús: Innangengt úr porti eða úr íbúðinni niðri.

Íbúðin á jarðhæð: Glæsileg, öll flísalögð, mjög rúmgott herbergi, baðherbergi með sturtu og eldhús með lítilli innréttingu.

Sér bílastæði fylgir eigninni i lokuðu porti.

- Ljósleiðari er kominn inn í húsið.

- Gangstéttin fyrir framan húsið er upphituð.

- Auðvelt er að breyta íbúðunum í eina íbúð.

Að sögn eiganda er mikið búið að endurnýja; skolplagnir og rafmagn einhverntíma fyrir árið 2004 en það ár var miðhæðin endurnýjuð að miklu leyti og árið 2005 var drenað við húsið. Árið 2010 voru klóakrör gerð upp á lóðinni utanhúss. Árið 2012 voru svalir stækkaðar. Árið 2014 var þakið málað og árið 2023 var sjálft húsið málað.

ATH! Vinsæl staðsetning í miðbænum í Reykjavík í nálægð við fjölbreytta þjónustu s.s. skóla, leikskóla, verslun, veitingastaði og menningarsvæði, ásamt því að stutt er í miðbæinn með allt sem hann hefur upp á að bjóða ofl.

Allar nánari uppl. og skoðun veitir: Jóhann Friðgeir, lgf  GSM: 896-3038  e-mail: johann@hofdi.is

Kort af Bjargarstígur 16

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu