HÚSASJÁ

Grundarstígur 11

01-0201 · 101 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
29 myndir

111 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1919

Byggingarár

157 m²

Lóð

Garður

Svalir

Friðað

Geymsla

Þvottahús



632 dagar á sölu

sell

94.900.000 kr

853.417 kr/m²

Pálsson Fasteignasala kynnir:

Grundarstígur 11 – íbúð 201, 101 Reykjavík.

Einstaklega falleg, björt og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á 2. hæð í sjarmerandi og vönduðu uppgerðu húsi í hjarta Þingholtanna. Íbúðin er 111,2 fm og nýtur auk þess 22,5 fm skjólsælla þaksvala með viðargólfi og skjólveggjum. Einstök viðbót við rýmið og frábær staður til að njóta borgarlífsins.

Helstu kostir:

22,5 fm þaksvalir – skjólgóðar, með viðargólfi og fallegu útsýni yfir borgina

Mikil lofthæð og stórir gluggar – bjart og hlýlegt andrúmsloft

Tvær samliggjandi stofur með rennihurð á milli (hægt að skipta rýminu upp)

Eina íbúðin á hæðinni

Nánari upplýsingar veita:

Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is

Ómar Hjaltason astmf. S:7789090 eða omar@palssonfasteignasala.is

www.eignavakt.is

www.verdmat.is

Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Húsið hefur fengið mikið viðhald á undanförnum árum (sjá nánar hér að neðan)

Nánari lýsing eignar

Forstofa/hol: Parketlagt, með fatahengi.

Stofur: Rúmgóðar, bjartar og parketlagðar samliggjandi stofur með rennihurð á milli og því auðvelt að aðlaga rýmið eftir þörfum. Úr stofum er útgengt á 22,5 fm þakverönd með viðargólfi, skjólveggjum og fallegu útsýni yfir borgina.

Eldhús: Mjög rúmgott og bjart eldhús með miklum gluggum og borðaðstöðu. Ljósar viðarinnréttingar með flísum á milli skápa, tengi fyrir uppþvottavél og tengi fyrir þurrkara.

Svefnherbergi: Tvö góð svefnherbergi. Hjónaherbergi er rúmgott með fataskápum og fallegum bogadregnum glugga. Barnaherbergi er parketlagt.

Baðherbergi: Flísalagt gólf og veggir, innrétting, vegghengt WC, handklæðaofn, sturtuklefi og tengi fyrir þvottavél.

Í kjallara hússins

Sérgeymsla 4,6 fm

Sameiginlegt þvottahús með gluggum

Sameiginleg hjólageymsla með sérinngangi af lóð

Húsið lítur vel út að utan og hefur verið farið í umtalsvert viðhald síðustu ár, m.a.:2025 Frárennsli endurnýjað2020: Húsið múrviðgert að utan og steinað upp á nýtt2020: Gluggar og gler endurnýjuð (nema í stigahúsi)2020: Þakjárn, þakpappi, þakrennur og niðurföll endurnýjuð2020: Skipt um útihurðir á þvottahúsi og geymslugangi2010: Klóaklagnir endurnýjaðar

Stigahús er snyrtilegt og bjart, nýlega málað og með vinyldúk á stiga milli hæða.

Staðsetning

Staðsetning eignarinnar er frábær á rólegum og grónum stað í miðborginni – stutt er í verslun, þjónustu, kaffihús, veitingastaði og allt það sem miðbærinn hefur upp á að bjóða.

Seljandi hefur ekki búið sjálf í íbúðinni, íbúðin hefur verið í útleigu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Kort af Grundarstígur 11

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu