HÚSASJÁ

Grettisgata 22

01-0101 · 101 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
59 myndir

134 m²

Stærð

5

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1908

Byggingarár

207 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Friðað

Geymsla

Þvottahús

Auka íbúð



25 dagar á sölu

sell

137.500.000 kr

1.029.192 kr/m²

Magnús Már Lúðvíksson og RE/MAX fasteignasala kynna: Fallegt og mikið endurnýjað 3-4 herbergja einbýlishús ásamt 3 herbergja íbúð í kjallara með sérinngangi og glæsilegum afgirtum bakgarði.

Bókið skoðun hjá Magga í síma 699-2010 eða Maggi@remax.is

Eignin er skráð samkvæmt Þjóðskrá Íslands alls  133,6 fm þar af er kjallari 49,5 fm, hæð 52,8 fm og ris 31,3 fm.

Lýsing eignar:

Miðhæð: Aðalinngangur

Bílastæði: Sérmerkt bílastæði við vinstri hlið hússins.

Anddyri: Flísar á gólfi, skápur undir stiga. Falleg ný klæðning á vegg og endurnýtt timbur í lofti.

Baðherbergi: Flísar á gólfi, upphengt salerni, sturtuklefi, handlaug og opnanlegt fag.

Eldhús: Parket á gólfi, rúmgott, gott skápa- og borðpláss, innfelld uppþvottavél, bakaraofn, Gaggenau gashelluborð og gufugleypir. (Ný rafmagnstafla í eldhúsi ef fólk vill setja helluborð í staðinn) Falleg frönsk hurð út á timburverönd.

Borðstofa: Parket á gólfi, opin við eldhús. (Var stigi niður í íbúð í kjallara sem búið er að fjarlægja)

Garður: Fallegur skjólslæll bakgarður með lýsingu, rafmagstenglum og markisu.

Rishæð: Hluti undir súð.

Baðherbergi: Viðfjalir á gólfi, stæði fyrir þvottavél og þurrkara, upphengt salerni, baðkar, gluggi.

Herbergi: Viðfjalir og korkflísar á gólfi, fataskápur. (Er á 2 hæðum)

Hjónaherbergi: Viðfjalir á gólfi, innfelldar hillur, skápar undur súð, rúmgott. (Möguleiki að skipta í 2 herbergi)

Kjallari: Sérinngangur

Eldhús: Nátturuflísar á gólfi, góð innrétting, innfelld uppþvottavél, ofn og helluborð.

Herbergi: Nátturuflísar á gólfi.

Herbergi: Nátturuflísar á gólfi, fataskápur (léttur veggur á milli herbergja)

Baðherbergi: Nátturflísar á gólfi, sturtuklefi, stæði fyrir þvottavél og þurrkara, upphengt salerni

Geymsla: Innaf baðherbergi, Ný rafmagnstafla, hillur

Endurbætur síðustu ára:

// Gólfefni í stofu, borðstofu og eldhúsi

// Bæði baðherbergi endurnýjuð

// Nýjar skólplagnir út í brunn

// Rafmagn endurnýjað að mestu, ný rafmagnsstafla, auka rafmagnstöflur í eldhúsi og í garðinum.

// Þakið hefur fengið gott viðhald og lítur vel út.

// Skipt um ofnalagnir að mestu

// Húsið var málað að innan í vetur

// Húsið hefur nýlega verið málað að utan

// Húsið var múrviðgert 2015

Frekari upplýsingar veitir:  Magnús Már Lúðvíksson löggiltur fasteignasali í síma 699-2010 eða maggi@remax.is

Kort af Grettisgata 22

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu