Skólavörðustígur 16
01-0201 · 101 Reykjavík



343 dagar á sölu
130.000.000 kr
709.995 kr/m²
Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til leigu eða sölu virkilega bjart, fallegt og vel staðsett 183,1 fermetra skrifstofuhúsnæði á 2. hæð í virðulegu húsi með stórum gluggum og fallegu útsýni á áberandi stað við Skólavörðustíg í Reykjavík. Eignin er skráð sem íbúð og möguleiki er að kaupa geymslu í kjallara sem er á sér fastanúmeri. Nánari upplýsingar og bókun á skoðun á fastmark@fastmark.is
Eigin skiptist í stórt opið skrifstofurými, tvö fundarherbergi, eldhúsaðstöðu og tvö baðherbergi sem bæði eru með glugga.
Lýsing eignar:
Sá hluti hæðarinnar sem snýr út að Skólavörðustíg skiptist í stórt opið skrifstofurými sem möguleiki er að skipta niður í aðskilin herbergi. Baðherbergi með glugga, flísalagt gólf og veggir, vaskskápar, handklæðaofn.
Fundarherbergin, sem bæði er innangengt í úr opnu skrifstofurými og einnig með sérinngangi úr stigahúsi er með máluðu gólfi og rúmgott með gluggum út að Óðinsgötu. Lítill eldhúskrókur með innréttingu með vaski og innbyggðri uppþvottavél er í einu rýminu.
Skrifstofurými sem snýr að Skólavörðustíg er með máluðu gólfi. Innbyggður peningaskápur í vegg í innra herbergi.
Baðherbergi, með glugga, málað gólf, og vaskskápar.
Húsið að utan lítur vel út og er í góðu ástandi og sameign er mjög snyrtileg með linleumdúklögðu stigahúsi. Nýbúið er að yfirfara og mála gluggakistur á hæðinni.
Virkilega falleg, björt og þó nokkuð endurnýjuð skrifstofuhæð á frábærum stað í miðbænum sem hægt er að nýta í þrennu lagi eða sameina á auðveldan máta í eina heild.
Eignin er laus til afhendingar strax.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna




























