Óðinsgata 2
01-0102 · 101 Reykjavík



615 dagar á sölu
105.000.000 kr
807.071 kr/m²
Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu 130,1 fermetra atvinnuhúsnæði (gallerí) með veitingaleyfi á frábærum stað við Óðinsgötu 2 í Reykjavík, sem er örfá skref frá Skólavörðustíg.
Mengi hefur verið með starfsemi í húsnæðinu um árabil og staðið fyrir uppákomum, listsýningum og fjölda annarra viðburða í samstarfi við fjölmarga innlenda og erlenda listamenn.
Eigandi eignarinnar er með veitingaleyfi í flokki 2 - Flokkur 2: Umfangslitlir áfengisveitingastaðir þar sem starfsemin er ekki til þess fallin að valda ónæði í nágrenninu svo sem með háværri tónlist og staðir sem kalla ekki á mikið eftirlit og/eða löggæslu.
Húsnæðið var mjög mikið endurnýjað árið 2013, sbr. upptalningu hér að neðan:
- Skipt um þak á bakhluta húsnæðis
- Húsnæðið allt innréttað upp á nýtt og sett ný gólfefni
- Raflagnir endurnýjaðar og rafmagnstafla
- Nýjar snyrtingar
- Nýjar neysluvatns- og gólfhitalagnir í hluta eignarinnar
Lýsing eignarinnar:
Komið er inn í sal með virkilega stórum og fallegum gluggum sem snúa að Óðinsgötu, flotað gólf og fallegur sjónsteypuveggur, fastar hillur á vegg.
Gengið er niður þrjú þrep í innri hluta sama rýmis en þar eru flotuð og parketlögð gólf og ofanbirta um þakglugga. Aukin lofthæð er í innri hluta salarins.
Tvær snyrtingar eru inn af sal og eru gólf flotuð og salerni vegghengd. Ræstikompa er inn af annarri snyrtingunni og í henni eru inntaksrými.
Inn af sal er einnig eldhús/kaffistofa með flotuðu gólfi, innréttingu, góðum gluggum og útgengi á baklóð hússins.
Snyrting er inn af kaffistofu.
Húsið að utan lítur vel út og er nýlega málað.
Staðsetning eignarinnar er virkilega góð, á mjög fjölförnum stað, steinsnar frá Skólavörðustíg sem er fjölfarnasta verslunargatan í Reykjavík.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna













