HÚSASJÁ

Grettisgata 75

01-0301 · 101 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
34 myndir

87 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1938

Byggingarár

203 m²

Lóð

Svalir

Geymsla

Þvottahús



14 dagar á sölu

sell

79.900.000 kr

914.188 kr/m²

Fasteignasalan TORG kynnir: Virkilega björt og einstaklega falleg 3ja herbergja íbúð við Grettisgötu 75, Reykjavík. Eignin er skráð 87,4fm þar af 3,2fm geymsla. Eignin er mjög opin með góðu flæði milli rýma og telur 2 svefnherbergi, baðherbergi, 2 stofur, eldhús og tvennar svalir. Með íbúðinni fylgir sér geymsla í kjallara og sameiginlegt þvottahús. Bæði herbergin eru mjög rúmgóð og fallegt útsýni er af svölum. Allar nánari upplýsingar veitir Andrea aðstoðarmaður lgf. í síma 861-0125 eða andrea@fstorg.is og/eða Skúli Sigurz Löggiltur fasteignasali í síma 869-7014 eða skuli@fstorg.is.

Nánari lýsing:

Forstofa með skápaeiningu og fatahengi í anddyri.

Svefnherbergin 2 eru rúmgóð, góðir opnir skápar í hjónaherbergi, parket á gólfum.

Eldhús er opið með góðu skápaplássi, tengi fyrir uppþvottavél og ísskáp, parket á gólfum.

Baðherbergi er nýlega uppgert. Flísalagt hólf í gólf.

2 stofur, samliggjandi stofa og borðstofa, mjög bjart og vel nýtt rými,

Þvottahús er sameignlegt í kjallara.

Geymsla er 3,2fm í kjallara.

2 svalir annars vegar svalir sem snúa til suðurs með útsýni að Hallgrímskirkju og hins vegar til norðurs.

Endurbætur: Eigin er í heild nýuppgerð. Eftirfarandi hefur verið endurnýjað að sögn seljanda: Parket er nýtt á gólfi. Gluggar og veggir eru nýlega málaðir. Eldhús vandað með nýjum innréttingum. Barðherbergi endurnýjað frá A-Ö árið 2021 með nýjum lögnum úr gólfi og upp, nýjum niðurföllum, blöndunartækjum, klósetti, vask, skápum og vegghengdum handklæðaofni. Rafmagn, vatn og flísalögn - allt unnið af fagmönnum. Lagnir hafa verið lagfærðar í þvottahúsi til að fjölga þvottavélum árið 2023. Allir gluggar í húsinu hafa verið endurnýjaðir fyrir utan fjóra sem metnir voru í lagi. Þakrennur endurnýjaðar árið 2022. Eigandi bætti við svölum sem snúa til suðurs.

Samantekt: Um ræðir virkilega góða og nýuppgerða eign á þessum vinsæla stað í miðbæ Reykjarvíkur þar sem stutt er í allar helstu verslanir og þjónustu, svo sem leik- og grunnskóla, verslun, leiksvæði og fallegt umhverfi. Allar nánari upplýsingar veitir Andrea aðstoðarmaður lgf. í síma 861-0125 eða andrea@fstorg.is og/eða Skúli Sigurz Löggiltur fasteignasali í síma 869-7014 eða skuli@fstorg.is.

Kort af Grettisgata 75

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð