HÚSASJÁ

Grettisgata 53B

01-0101 · 101 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
22 myndir

209 m²

Stærð

5

Herbergi

8

Svefnherbergi

8

Baðherbergi

1921

Byggingarár

168 m²

Lóð

Sérinngangur

Friðað

Geymsla

Þvottahús



23 dagar á sölu

sell

284.000.000 kr

1.156.823 kr/m²

RE/MAX / Brynjar Ingólfsson kynnir: Um er að ræða heila húseign með sex 2ja herbergja íbúðum auk geymslna, samtals 245,8 fermetra.  Eignin er skráð sem íbúðarhúsnæði en starfar sem gistiheimili/íbúðarhótel og er með gistileyfi í flokki II.

SKOÐAÐU GRETTISGÖTU 53B HÉR Í 3D (6 ÍBÚÐIR)

- Einnig er sami eigandi með Grettisgötu 55a sem er parhús með tveim íbúðum, 46,7 fm hvor, saman 93.4 fm. (hægt að kaupa með - sjá aðra skráningu).

- Innbú nýlega endurnýjað og fylgir

- Rekstur á kennitölu fylgir með

- 2010 var stóra húsið tekið í gegn

- 2025 var allt málað að innan og húsgögn endurnýjuð

Um er að ræða virkilega fallegt og hlýlegt nýlega uppgert 6 íbúða heila húseign, sem var að öllu leyti endurbyggð árið 2010, á virkilega rólegum og góðum stað í hjarta miðborgarinnar. Svalir eru á 4 íbúða hússins. Íbúðirnar skiptast í hol, eldhús, stofu, svefnherbergi og baðherbergi. Sameiginlegt þvottaherbergi er fyrir íbúðirnar. Íbúðirnar eru allar fullbúnar húsgögnum og húsbúnaði og getur það allt fylgt með í kaupunum. Geymslur og sameiginlegt þvottaherbergi eru í sér húsi á lóðinni.

Árið 2010 var húsið allt endurbyggt. Þá var m.a. skipt um þak, þakrennur, niðurföll, klóaklagnir undir húsi og út í brunn, neysluvatnslagnir, ofna og ofnalagnir, raflagnir og töflur, gler og glugga og húsið viðgert og málað að utan. Hið innra var húsið allt innréttað árið 2010 og er í góðu ástandi. Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á rólegum stað á baklóð við Grettisgötu og hitalagnir eru undir gangstétt upp að húsinu.

1 og 2 hæð voru sprautaðar 2025 með Prima Clean (eins og sjúkrahúsin nota) sem auðvelda þrif.

Grettisgata 53b er á einu fastanúmeri í dag en ljóst er að hægt væri að fá sér fastanúmer á íbúðir í húsinu eins og var áður auk þess sem mögulegt er að vera að fá 6. íbúðina samþykkta af byggingaryfirvöldum með tiltölulega lítilli fyrirhöfn og kostnaði. Það sem er til sölu er rekstur gistiheimilis í 101 Rvk með tilskildum leyfum.

Allar frekari upplýsingar um eignina veitir:

Brynjar Ingólfsson MSc, löggiltur fasteignasali í síma 666 8 999 / brynjar@remax.is

Kort af Grettisgata 53B

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22