HÚSASJÁ

Grettisgata 55A

01-0101 · 101 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
30 myndir

93 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1913

Byggingarár

122 m²

Lóð

Sérinngangur

Friðað

Auka íbúð



3 dagar á sölu

sell

97.900.000 kr

1.048.180 kr/m²

RE/MAX / Brynjar Ingólfsson kynnir: Mikið endurnýjað og eigulegt parhús á baklóð við Grettisgötu 55A í hjarta Reykjavíkur. Eignin skiptist í tvær rúmgóðar 2ja herbergja íbúðir, hvor um sig með sérinngangi, sem býður upp á sveigjanlega nýtingu eða útleigumöguleika. Húsið hefur gengist undir gagngerar endurbætur að utan og innan á síðustu árum, sem gerir það að vönduðu og viðhaldslitlu heimili. Björt rými með parketi og nýlegum innréttingum. Frábær staðsetning í rólegu umhverfi þrátt fyrir að vera í miðbænum, stutt frá allri helstu þjónustu, menningu og útivistarsvæðum. Alls er eignin 93,40 m² að stærð.

* Útleigueining. Húsið skiptist í tvær 2ja herbergja íbúðir - 46,7 m² hvor.

* Endurnýjuð eldhús og baðherbergi

* 2021 var húsið múrviðgert að utan og málað ásamt þakjárni.

* Endurnýjun sl. ár tiltelur ma. klóaklagnir ( undir húsi og út í götu), rafmagnslagnir og töflur, ofnar, ofnalagnir, gler og glugga að miklum hluta, þakjárn og rennur.

* Hellulögð verönd með skjólveggjum og sólpallur

SKOÐAÐU ÍBÚÐ EFRI HÆÐAR Í 3D HÉR

SKOÐAÐU ÍBÚÐ NEÐRI HÆÐAR Í 3D HÉR

Efri hæð

Ljós og falleg tveggja herbergja íbúð með sérinngangi, parketi á gólfum og góðu útsýni.

Forstofa: Flísar á gólfi.

Eldhús: Nútímaleg, grá innrétting með helluborði, bakarofni og innbyggðri uppþvottavél. Parket á gólfi.

Stofa: Bjart rými með parketi á gólfi og stórum suðurglugga sem veitir mikla dagsbirtu.

Svefnherbergi: Rúmgott herbergi með parketi á gólfi.

Baðherbergi: Flísalagt með innréttingu með handlaug, baðkari, vegghengdu salerni og tengi fyrir þvottavél.

Geymsluloft: Góð geymsluaðstaða er yfir íbúðinni.

Neðri hæð

Notaleg tveggja herbergja íbúð með sérinngangi og beinu aðgengi að útisvæði.

Forstofa: Flísar á gólfi.

Eldhús: L-laga innrétting í ljósum litum með bakaofni, helluborði og tengi fyrir uppþvottavél. Parket á gólfi.

Stofa: Opin stofa að hluta til eldhúsi með parketi á gólfi og suðurglugga sem tryggir góða birtu.

Svefnherbergi: Rúmgott svefnherbergi staðsett innar í íbúðinni með parketi á gólfi.

Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með baðkari, innréttingu með handlaug, upphengdu salerni og tengi fyrir þvottavél.

Garður og umhverfi

Skjólgott útisvæði með palli og frábærri staðsetningu í miðbænum.

Útisvæði: Hellulögð verönd með skjólveggjum og sólpallur sem snýr í suður, býður upp á notalega útiveru.

Aðkoma: Eignin stendur á baklóð og aðkoma er milli húsa Grettisgötu 55 og 57.

Staðsetning: Virkilega róleg og eftirsóknarverð staðsetning miðsvæðis í hjarta Reykjavíkur. Stutt er í alla helstu þjónustu, menningu, sundlaug og fjölbreytta útivist.

Allar frekari upplýsingar um eignina veitir:

Brynjar Ingólfsson MSc, löggiltur fasteignasali í síma 666 8 999 / brynjar@remax.is

Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Kort af Grettisgata 55A

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30
Grettisgata 55A, 01-0101 | Húsasjá