HÚSASJÁ

Laugavegur 60A

01-0301 · 101 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
43 myndir

135 m²

Stærð

3

Baðherbergi

1933

Byggingarár

390 m²

Lóð

Sérinngangur

Geymsla

Þvottahús



627 dagar á sölu

sell

132.000.000 kr

709.677 kr/m²

Borg fasteignasala kynnir til sölu eða leigu.  Heil húseign. Laugavegur 60 – fjölhæf og glæsileg eign í hjarta borgarinnar. Eftirsótt staðsetning í miðbæ Reykjavíkur.

Um er að ræða steinsteypt hús með heildarstærð 186,4 fm, sem býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika fyrir rekstur, þjónustu, skrifstofur eða blandaða notkun.

Eignin skiptist á þrjár hæðir, þar sem hver hæð hefur sína sérstöðu:

1. hæð – atvinnurými (51,9 fm):

Bjart og opið rými með stórum gluggum að götu. Skipulagið hentar vel fyrir verslun, þjónustu eða móttöku. Geymsla er innan rýmisins og gólfefni er vandað parket. Sýnileg staðsetning sem nýtist vel í hvers kyns rekstri.

2. og 3. hæð – björt rými með mikilli lofthæð (samtals 134,5 fm):

Efri hæðirnar bjóða upp á rúmgóð og vel skipulögð rými með nýlegu parketi, nýlegum ofnum og raflögnum.

Á annarri hæð er baðherbergi, þvottahús og tvö herbergi.

Á þriðju hæð er baðherbergi, lítið kaffihorn og þrjú herbergi.

Hæðirnar eru sérstaklega glæsilegar vegna mikillar lofthæðar og stórra þakglugga, sem veita einstaka birtu og rýmistilfinningu.

Húsið hefur verið  endurnýjað að innan, auk þess sem bakhlið þess hefur verið klædd að nýju. Aðgengi er gott og möguleiki er á að loka neðstu hæð frá efri hæðum, sem eykur sveigjanleika í nýtingu. Einnig er möguleiki á að leigja einingar aðskildar.

Mögulegir nýtingarkostir:

Verslun og/eða veitingastaður á öllum hæðum

Verslun á 1. hæð og skrifstofur á 2.–3. hæð

Verslun á 1. hæð og íbúðar- eða gistirými á efri hæðum

Eitt Bílastæði er á  baklóð.  Eignin er laus til afhendingar.

Einstakt tækifæri til að festa kaup á vandaðri eign með mikla möguleika á einni bestu staðsetningu miðborgarinnar.

Nánari upplýsingar veita :

Úlfar Þór Davíðsson, í síma 788-9030, tölvupóstur ulfar@fastborg.is

Börkur Hrafnsson , í síma 892-4944, tölvupóstur borkur@fastborg.is

Kort af Laugavegur 60A

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36Mynd 37Mynd 38Mynd 39Mynd 40Mynd 41Mynd 42Mynd 43