HÚSASJÁ

Hverfisgata 82

01-0401 · 101 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
20 myndir

50 m²

Stærð

2

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1960

Byggingarár

232 m²

Lóð

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



198 dagar á sölu

sell

49.500.000 kr

995.976 kr/m²

Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Helgafell fasteignasala kynna í einkasölu Hverfisgötu 82, íbúð 401, 101 Reykjavík:

Um er að ræða bjarta 2ja herbergja útsýnisíbúð á 4. hæð í vel viðhöldnu fjölbýlishúsi í miðbæ Reykjavíkur.  Frábært útsýni í norður í átt að Esjunni.  Birt stærð eignar er 49,7 fm og að auki er sérgeymsla á hæðinni. Húsið er byggt árið 1960 og er teiknað af Sigvalda Thordarson arkitekt. Húsið hefur að sögn eiganda fengið gott viðhald m.a. er nýlega búið að skipta um þakjárn, glugga, múrviðgerðir og málað að utan.

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX

Íbúðin skiptist í forstofu, stofu / svefnherbergi, eldhús, baðherbergi (þvottaaðstaða) og geymslu (er staðsett á sömu hæð).

Nánari lýsing:

Forstofa: Komið er inn í forstofu með fatahengi, parketi á gólfi.

Stofan / svefnherbergi:  Rúmgóð, fataskápur, parket á gólfi. Búið er að sameina stofu og svefnherbergi í eitt rými. Eldhús og stofa eru í opnu rými með stórri gluggaröða í austur og gluggum í norður með fallegu útsýni yfir Esjuna.

Eldhús:  Eldhús nýrri hvítri innréttingu, bakaraofn, keramikhelluborð, parket á gólfi.

Baðherbergi: Inn af forstofu, með innréttingu, sturta, tengi fyrir þvottavél, flísar á gólfi og inn í sturtu.

Geymsla: Rúmgóð geymsla sem staðsett er á hæð utan við íbúð.

Sameign: Á fyrstu hæð er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Sameiginlegar svalir til suðurs eru frá stigagangi.

Lóð: Sameiginleg 232 fm eignarlóð.

Staðsetning: Smellið hér.

Að sögn eiganda er búið að endurnýja eftirfarandi:

** Nýlegt parket.

* Múrviðgerðir og málað að utan 2023.

* Nýir gluggar á austurhlið 2023.  Hinir voru endurnýjaðir fyrir nokkrum árum.

* Ný eldhúsinnrétting og tæki 2023.

* Nýtt járn á þakið 2022.

Frábærlega vel staðsett eign með fallegu útsýni í hjarta borgarinnar. Stutt er í marga bestu veitingastaðir borgarinnar, í verslanir (Bónus í næsta húsi), skóla og alla almenn þjónustu. Gegnt húsinu er Vitatorg bílastæðahús og möguleiki er fyrir íbúa að fá bílastæðakort/íbúakort Reykjavíkurborgar gegn lágri greiðslu. Stutt er fallegar göngu- og hjólaleiðir við sundin við Sæbraut.

Nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í síma 893 3276 eða holmar@helgafellfasteignasala.is.----------------------------------------------------------

Heimasíða Helgafells fasteignasölu

Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.

4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  92.380,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Kort af Hverfisgata 82

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð