HÚSASJÁ

Laugavegur 28D

01-0201 · 101 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
25 myndir

45 m²

Stærð

3

Baðherbergi

1922

Byggingarár

54 m²

Lóð

Garður

Svalir

Friðað



214 dagar á sölu

sell

59.900.000 kr

1.337.054 kr/m²

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu algjörlega endurnýjaða 44,8 fermetra 2ja herbergja íbúð á tveimur hæðum og með tvennum svölum í nýuppgerðu þríbýlishúsi við Laugaveg 28D í Reykjavík.

Vandaðar innréttingar og tæki. Uppþvottavél og ísskápur í eldhúsi og gardínur og ljós að hluta fylgja með í kaupunum. Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.

Heildareignin fékk nýlega athugasemdalausa lokaúttekt að aflokinni endurbyggingu hennar. Eignin getur verið laus til afhendingar fljótlega.

Aðkoma að húsinu er bæði frá Laugavegi og Grettisgötu um hellulagt og snyrtilegt port sem er sameiginlegt með húsunum nr. 28A, C og D við Laugaveg.

Húsið hefur algjörlega verið endurnýjað/endurbyggt á sl. mánuðum:

- hús allt múrviðgert og málað að utan

- skipt um þak og settir kvistir

- allt gler, gluggar og útihurðir endurnýjaðar

- allar lagnir endurnýjaðar og lagðar gólfhitalagnir á hverja hæð fyrir sig

- inntak fyrir rafmagn og heitt vatn endurnýjað

- lagnagrind og rafmagnstöflur endurnýjaðar

- gólfplötur á milli hæða endurnýjaðar sem og stigar á milli hæða

- allir innveggir byggðir upp frá grunni

- útitröppur steyptar upp á nýtt

- Innihurðir, rennihurðir og gólfefni eru frá Birgisson

Lýsing íbúðar á efri hæð og í risi:

Sameiginlegur inngangur er með íbúð á 1. hæð og sameiginleg flísalögð forstofa.

Gengið er upp nýjan teppalagðan fallegan stiga með nýjum handriðum upp á efri hæðina.

Stigapallur, parketlagður.

Stofa, parketlögð og björt með gólfsíðum gluggum til suðurs og útgengi á nýjar svalir til suðurs.

Baðherbergi, flísalagt gólf og veggir, flísalögð sturta með sturtugleri, vaskskápar, veggskápar, vegghengt wc og handklæðaofn.

Eldhús, parketlagt, gluggar til norðurs og lítil borðaðstaða. Ný svört eldhúsinnrétting með náttúrusteini á borði, nýjum vönduðum tækjum, innbyggðri uppþvottavél og tengi fyrir þvottavél.

Gengið er upp nýjan fallegan teppalagðan stiga með nýjum handriðum á rishæð.

Alrými, parketlagt og bjart með gaflglugga til vesturs og stórum gluggum til norðurs og suðurs. Úr alrými er útgengi á nýjar svalir til suðurs.

Húsið að utan er í góðu ástandi, sbr. lýsingu eignarinnar hér að ofan, allt ný endurnýjað, þ.m.t. þak, gler, gluggar og útihurðir, auk þess sem húsið er allt múrviðgert og málað.

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á eftirsóttum stað miðsvæðis í borginni.

Allar nánari upplýsingar og tímapantanir á skoðun er að fá á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Er væntanlegum kaupendum því bent á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 fyrir hvert skjal.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðum lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Kort af Laugavegur 28D

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25