HÚSASJÁ

Bankastræti 11

01-0301 · 101 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
25 myndir

183 m²

Stærð

5

Svefnherbergi

3

Baðherbergi

1915

Byggingarár

528 m²

Lóð

Garður

Friðað

Geymsla

Þvottahús



2 dagar á sölu

sell

195.000.000 kr

1.064.410 kr/m²

Guðlaugur J. Guðlaugsson og Gunnar Sverrir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:

Til leigu / sölu : leigufjárhæð er 890.000 kr per mánuð / Með leigu getur allt innbú fylgt með án persónulegra muna. Ásett söluverð er 195.000.000 kr.

Einstaklega glæsileg og smekklega endurnýjuð 183,2 fm. skrifstofuhæð / íbúð á 3. hæð við Bankastræti 11, 101 Reykjavík. Eignarlóð.

Smelltu á link til að sjá skrifstofuhúsnæðið / íbúðina í 3-D

Bókið skoðun hjá Gulla í síma 661-6056 / gulli@remax.is

Skv. HMS er íbúð/"skrifstofa" á hæð skráð 176,1 fm. Sér geymsla í kjallara er skráð  7,1 fm. Samtals stærð er 183,2 fm.

Skipulag telur: 5 skrifstofurými/ herbergi og ein stofa. Tvö baðherbergi og eitt gesta salerni. Aukin lofthæð, vönduð gólfefni og vandað eldhús. Fallegir gluggar, rósettur í lofti og kamína í stofu. Virklega smekkleg og falleg eign á flottum stað.

Nánari lýsing:

Íbúðin/ skrifstofurýmið er á 3. hæð.

Komið er inn í parketlagða forstofu/gang.

Þrjár samliggjandi stofur, eða tvö rúmgóð skrifstofurými með sameiginlega stofu á þar á milli með kamínu og bogadregnum gluggum.  Hægt er að loka báðum skrifstofurýmum með tvöföldum hurðum með gleri á milli. Parket  gólfum. Útgengi er út á svalir frá öðru skrifstofurýminu.

Auk þess eru þrjú önnur skrifstofurými. Öll mjög rúmgóð með parket á gólfi.

Inn af einni skrifstofunni er sér baðherbergi flísalagt að hluta. Upphengt salerni. Innrétting með tveimur undirlímdum vöskum og speglar þar fyrir ofan. Steinn á borði. Flísalögð sturta með innbyggðum blöndunartækjum, glerskilrúm og handklæðaofn.

Eldhús er með stein á borðum, undirlímdan vask og spenhelluborð. Bökunarofn og örbylgjuofn í vinnuhæð.  Ískápur, uppþvottavél, efri og neðri skápar ásamt góðu vinnuplássi. Góður borðkrrókur er inn af eldhúsi. Inn af eldhúsi er svo sér sturtuherbergi/þvottahús með sturtuaðstöðu,  baðinnréttingu með handlaug og tengi fyrir þvottavél. Innangengt er í bakstigahús út frá eldhúsi.

Gestasalerni er inn af gangi, flísalagt að hluta, upphengt salerni, handlaug og speglar.

Sér geymsla, í kjallara 7,1 fm.

Sameiginlegt stigahús er með glugga, dúklagt. Sameiginlegar svalir eru til norðurs útaf bakstigahúsi.

Nánari upplýsingar veita: Guðlaugur J. Guðlaugsson/Gulli löggiltur fasteignasali í síma 661-6056 / gulli@remax.is og Gunnar Sverrir löggiltur fasteignasali í síma 862-2001 / gunnar@remax.is

Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband og við munum verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1.  Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.

2.  Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.

3.  Lántökugjald lánastofnunar -  Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-

Kort af Bankastræti 11

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu