HÚSASJÁ

Skúlagata 40B

11-0203 · 101 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
20 myndir

79 m²

Stærð

2

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1990

Byggingarár

3230 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



294 dagar á sölu

sell

58.900.000 kr

749.364 kr/m²

Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir:

Björt og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð á 1. hæð (jarðhæð) í eftirsóttu lyftuhúsi fyrir 60 ára og eldri. Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.

Eignin er skráð 78,6 fm hjá HMS - þar af er stæði í bílageymslu skráð 15 fm.

Íbúðin er laus til afhendingar við kaupsamning.

Bókið skoðun hjá Ingibjörgu Þórðardóttur löggiltum fasteignasala í síma 864-8800 / ingibjorg@hibyli.is

Nánari lýsing:

Forstofa:  Flísar á gólfi, fataskápur.

Hol: Parket á gólfi, unnt að nýta sem sjónvarpshol.

Stofa: Rúmgóð og björt stofa, parket á gólfi. Útgengt á verönd sem snýr í suður.

Eldhús: Opið við stofu, hvít innrétting með eikarhliðum og köntum, gluggi, borðkrókur.

Baðherbergi:  Flísar á veggjum, dúkur á gólfi, hvít innrétting undir vaski og skápur, flísalögð sturta með glerhlið sem gengið er slétt inní.

Svefnherbergi Rúmgott herbergi, parket á gólfi, fataskápar.

Þvottahús/geymsla: Innan íbúðar, dúkur á gólfi, tengi fyrir vélar, skolvaskur, vegghillur.

Íbúðinni fylgir sérmerkt bílastæði í bílakjallara hússins. Í bílastæðahúsinu er þvottaaðstaða fyrir bíla og háþrýstidæla.

Húsvarðaríbúð er staðsett á Skúlagötu 40, sem húsfélögin Skúlagötu 40, 40a og 40b eiga sameiginlega. Sameiginlegur samkomusalur í eigu húsfélaganna er einnig til afnota fyrir íbúa og hægt að leigja salinn gegn vægu gjaldi. Þar að auki er heitur pottur og sauna í sameign til afnota fyrir íbúa sem er staðsett á Skúlagötu 40.

Bílastæði fyrir íbúa og gesti eru einnig framan við húsið Skúlagötumegin sem og aftan við húsið.

Eignina má eingöngu selja félögum í Félagi eldri borgara sem eru 60 ára og eldri. Húsvörður er í húsinu, sem er tengt öryggiskerfi.

Vitatorg við Lindargötu 59 er í nágrenni þar sem er ýmiskonar þjónusta og afþreying fyrir 60 ára og eldri.  sjá nánar: https://reykjavik.is/stadir/lindargata-59-samfelagshus

Góð íbúð á eftirsóttum stað í miðborginni - örstutt í alla helstu verslun og þjónustu - göngufæri við Hörpuna, Þjóðleikhúsið og fjölmargt annað sem miðborgin hefur uppá að bjóða.

Nánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma 585-8800 eða á netfanginu ingibjorg@hibyli.is

Ingibjörg Þórðardóttir löggiltur fasteignsali s. 864-8800 / ingibjorg@hibyli.is

Kort af Skúlagata 40B

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20