HÚSASJÁ

Vatnsstígur 9

02-0201 · 101 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
28 myndir

103 m²

Stærð

1

Herbergi

2

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1915

Byggingarár

327 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Friðað

Geymsla



185 dagar á sölu

sell

82.000.000 kr

799.220 kr/m²

Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir:

Falleg og björt efri hæð með sérinngangi ásamt íbúðarrými í kjallara með útleigumöguleika við Vatnsstíg í miðborginni.

Bókið skoðun hjá Ólafi M. Ólafssyni löggiltum fasteignasala í síma 865-8515 / olafur@hibyli.is

Lýsing eignar:

Forstofa: Flísar á gólfi, fatahengi. Gengið um timburstiga upp á hæðina, stigapallur er með timburfjölum á gólfi. Stór gluggi við stigann sem hleypir mikilli birtu inn í íbúðina.

Eldhús: Dökk viðarinnrétting sem var endurnýjuð 2022, gott skápa og vinnupláss,

Stofa: Setustofan er opin við eldhús, timburfjalir á gólfi.

Herbergi 1: Rúmgott herbergi, timburfjalir á gólfi, fataskápar. Rennihurðir sem eru innfelldar í vegginn aðskilja herbergin tvö.

Herbergi 2: Einnig gott herbergi, timburfjalir á gólfi, tengi fyrir þvottavél, timburstigi upp á risloftið sem er yfir íbúðinni.

Baðherbergi: Flísalagður sturtuklefi, hvít innrétting undir vaski, gluggi.

Risloft: Yfir íbúðinni er risloft sem er skráð sem geymsla (12,3 fm). Lægri lofthæð er á risloftinu.

Timburfjalir á gólfi, í austurendanum er svefnaðstaða og í vesturendanum er vinnuaðstaða. Gluggar eru í sitthvorum endanum.

Íbúðarrými í kjallara (27,9 fm) - gluggar á tveimur hliðum. Komið inn í sameiginlegan gang og þaðan er innangengt í rýmið.

Alrými næst inngangnum er með steyptu gólfi og glugga í suður.

Svefnrými er opið við eldhúskrók, lítil hvít innrétting með viðarborðplötu og vaski. Salerni er lokað af með rennihurð við eldhús, flísar á gólfi.

Viðhald/endurbætur:

Klóaklagnir undir húsi voru endurnýjaðar um árið 2000.

Ofnar og ofnalagnir innan íbúðar voru endurnýjaðar árið 2022.

Þakjárn og þakpappi á bíslagi (stigahúsi) var endurnýjað 2025.

Húsgrunnur málaður að utanverðu 2020

Gluggar málaðir að utanverðu 2021

Nánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma 585-8800 eða á netfanginu olafur@hibyli.is

Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / olafur@hibyli.is

Kort af Vatnsstígur 9

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu