HÚSASJÁ

Klapparstígur 13

01-0101 · 101 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
16 myndir

66 m²

Stærð

1

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1936

Byggingarár

300 m²

Lóð

Garður

Geymsla

Þvottahús



158 dagar á sölu

sell

54.900.000 kr

831.818 kr/m²

DOMUSNOVA KYNNIR  2JA  HERBERGJA ÍBÚÐ Á GÓÐUM STAÐ Í MIÐBORGINNI EIGNIN GETUR VERIÐ LAUS VIÐ KAUPSAMNING.

Klapparstígur 13, 101 Reykjavík, íbúð á fyrstu hæð í sjö íbúða steinsteyptu og steinuðu fjölbýlishúsi.

Birt stærð samtals 66.0 m², þar af gelymsla 6,1fm.

Nánari upplýsingar veita:

Vera Sigurðardóttir löggiltur fasteignasali / s. 8661110 / vera@domusnova.is

Nánari lýsing:

Anddyri: Gengið er inn um  sameign inn í forstofu með flísum á gólfi.

Stofan: Rúmgóð og björt með harðparket á gólfi.

Eldhúsið: Með eldri innréttingu og flísum á gólfi, útgengi á litlar austursvalir sem snúa út í gróinn kyrrlátan bakgarð.

Svefnherbergi: Rúmgott, einnig með harðparketi á gólfi og snýr að sameiginlegum bakgarði.

Baðherbergið: Með sturtu og flísalögðu gólfi. Gluggi á baðherbergi.

Sérgeymsla: Í sameign fylgir íbúðinni.

þvottahús: Í sameign hver íbúð hefur sérpláss fyrir þvottavél og þurrkara, gott þurkherbergi.

Hjólageymsla: Með aðgengi beint út í bakgarð.

Lóð: Er eignarlóð, 300 m² að stærð, og er sameiginleg með Klapparstíg 13A (Lindargötu 18).

Þetta er einstaklega heppileg eign fyrir þá sem vilja búa í fallegu og lifandi umhverfi miðborgarinnar. Hentar vel bæði sem fyrsta eign eða sem fjárfesting.

Um er að ræða bjarta og vel skipulagða íbúð í hjarta borgarinnar, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, kaffihús, verslanir og menningarlíf.

Skv. eignaskiptasamningi:

Eignin er íbúð á 1. hæð, rými nr. 0101 með birt flatarmál 59,9 m², geymsla í kjallara, rými nr. 0003 með birt flatarmál 6,1 m².   Auk þess á eignin hlutdeild í sameign allra, þvottahús, þurrkrými og göngum, rými nr. 0007, inntaksrými nr. 0008 og stigahús, rými nr. 0009, 0103, 0203 og 0303. Eigninni fylgir ekki bílastæðaréttur á lóðinni.  Hlutfallstölur eru: 1) í matshluta 14,54%. 2) í heildarlóð 7,27%. 3) í hitakostnaði 14,50%. 4) í sameiginlegum rafmagnskostnaði 1/7.

Helstu endurbætur:

2025: Gluggar á framhlið húss málaðir. Gólf í þurrkherbergi og gangi í kjallara málað, þakrennur hreinsaðar.

2023: Allt parket endurnýjað í íbúðinni.

2020: Þakrennur háþrýstiþvegnar, múrviðgerðir við þakrennur og trefjaplast borið í þær. Veggskemmdir í kjallara lagaðar og sameign máluð.

2018: Dyrasímakerfi endurnýjað, aðal útidyrahurð pússuð og lökkuð. Skipt var um útidyrahurð í kjallara. Skipt um affallsrör fyrir þvottavélar í kjallara.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Kort af Klapparstígur 13

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð