HÚSASJÁ

Klapparstígur 12

01-0101 · 101 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
31 myndir

118 m²

Stærð

2

Herbergi

3

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1920

Byggingarár

111 m²

Lóð

Garður

Friðað

Geymsla

Þvottahús



578 dagar á sölu

sell

84.900.000 kr

721.939 kr/m²

Trausti fasteignasala og Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali kynna Klapparstíg 12 í miðborg Reykjavíkur. Búið er að teikna breytingu á húsnæðinu í þrjár íbúðir, en í dag er verið að ganga frá teikningum í þær breytingar. Í dag eru allar íbúðirnar í útleigu. Hér er á ferðinni einstakt tækifæri fyrir verktaka eða fjárfesta, eða fyrir kaupanda sem vill hafa möguleika á útleigu hluta eignarinnar. Klapparstígur er í göngufæri frá miðbænum og er stutt í alla helstu þjónustu. Allar nánari upplýsingar veitir Hallgrímur Hólmsteinsson lgfs í síma 896-6020 eða í netfanginu hallgrimur@trausti.is eða hjá Kristjáni Baldurssyni í netfanginu kristjan@trausti.is.

Samtals er rýmið sem er til sölu 117,6 fm samkvæmt skráningu HMS, en búið er að teikna viðbótarrými og er því samtals stærð 133,5 fm eftir breytingar. Fasteignamat næsta árs verður 83.250.000.-

Nánari lýsing eignar:

Núverandi skipulag: Um er að ræða tveggja herbergja íbúð (eitt herbergi og stofa) og rúmgott eldhús. Stórar svalir fylgja íbúðinni, en gengið er út á þær frá stigagangi. Einnig fylgir rúmgóð geymsla.

Aðskilin frá íbúðinni eru svo tvö önnur herbergi, eitt beint á móti á sömu hæð og annað í kjallara. Bæði herbergin eru með eldhúskrók hvort um sig og sér inngang frá stigagangi. Snyrting er í sameign í stigagangi og sturtuaðstaða í þvottahúsi.

Undir svölum, á kjallara-/jarðhæð, er svo stór geymsla.

Teikningarnar gera ráð fyrir að stækka herbergin tvö og breyta þeim í littlar, sjálfstæðar stúdíó íbúðir hvor um sig með eigin baðherbergi. Efra herbergið stækkar út á svalirnar og byggt yfir, neðra herbergið yrði stækkað inn í geymsluna undir svölunum. Úr yrðu þrjár sjálfstæðar einingar.

Stærð skv. teikningu er 42,5 fm í stúdíóíbúð í kjallara, 42,5 fm stúdíóíbúð á fyrstu hæð, beint fyrir ofan kjallaraíbúð og með sama skipulagi, og svo 48 fm tveggja herbergja íbúð á fyrstu hæð.

Sameiginlegt þvottahús í kjallara, hver íbúð er með sín eigin þvottatæki.

Snyrting í kjallara, sem er í sameign íbúða hússins. Þá er sturtuaðstaða í þvottahúsi.

Athugið að lán frá seljanda getur verið fyrir hluta kaupverðsins.

Klapparstígur 12 er neðan við Hverfisgötu og því á afar rólegum stað í hjarta miðborgarinnar. Sjón er sögu ríkari, bókið skoðun hjá Hallgrími Hólmsteinssyni í síma 896-6020 eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is eða Kristján Baldursson með tölvupósti á kristjan@trausti.is.Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Kort af Klapparstígur 12

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð