Tjarnargata 10A
01-0401 · 101 Reykjavík



268 dagar á sölu
89.900.000 kr
729.116 kr/m²
Guðný Ösp lgf., s. 665-8909 og fasteignasalan TORG kynnir rúmgóða fjögurra herbergja íbúð við Tjarnargötu 10a
Umrædd eign er staðsett á 4. hæð með einstöku útsýni í átt að ráðhúsi Reykjavíkur og Hallgrímskirkju.
Eignin er skv. fasteignaskrá HMS skráð 123,3 m2 en þar af er 26,2 m2 íbúðar herbergi í kjallara sem er skráð sem geymsla.
*** Uppítaka á minni 3. herbergja íbúð í póstnúmerum 101 og 107 kemur til greina ***
Nánari lýsing:
Frá stigapalli er komið inn í forstofugang, en einungis ein íbúð er á hverjum stigapalli.
Herbergi II: parket á gólfi.
Eldhús: flísar á gólfi.
Stofa- og borðstofa: parket á gólfi, opið og bjart rými með fallegu útsýni í átt að ráðhúsi Reykjavíkur og Hallgrímskirkju.
Baðherbergi: flísar á gólfi og veggjum, sturta og upphent salerni.
Hjónaherbergi I: parket á gólfi, fataskápur, gengið út á suð-vestur svalir.
Herbergi/geymsla III: í kjallara hússins er 26,2 m2 rými sem er skráð sem geymsla en er búið að breyta í herbergi, þar sem hægt er að setja upp baðherbergi( búið að setja upp vegg og allar lagnir til staðar og niðurföll).
Þvottahús: sameiginlegt þvottahús staðsett í kjallara hússins.
Í kjallara hússins er útgengi út í afgirtan bakgarð, þar sem er búið að setja upp pall.
Umrædd eign er einstaklega vel staðsett í hjarta 101 og er í göngufæri við alla helstu þjónustu- og verslun, ásamt fjölda veitingastaða.
Nánari upplýsingar veitir: Guðný Ösp, lgf. s. 665-8909 eða gudny@fstorg.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign: Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila en 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða.
Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali. Umsýslugjald fasteignasölu, samkvæmt gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna



















