HÚSASJÁ

Ásvallagata 44

01-0101 · 101 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
16 myndir

139 m²

Stærð

4

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1955

Byggingarár

455 m²

Lóð

Sérinngangur

Bílskúr

Þvottahús



17 dagar á sölu

sell

118.900.000 kr

853.553 kr/m²

Betri Stofan fasteignasala og Þórir Skarphéðinsson lögmaður og lgfs, sími 844-9591 - thorir@betristofan.is, kynna Ásvallagötu 44.

Björt og vel skipulögð fimm herbergja íbúð á fyrstu hæð í 4-býlishúsi á eftirsóttum stað í Vesturbænum. Sér inngangur. Eignin er alls 139,3 fm, þar af 27,9 fm bílskúr.

Nánari lýsing:

Komið er inn á flísalagða forstofu með fataskáp. Þaðan er gengið inn á gang sem tengir við aðrar vistarverur íbúðarinnar. Stofa og borðstofa í sérlega björtu og fallegu alrými með útskotsglugga, gengið út á svalir frá stofum. Eldhús er rúmgott með borðkrók, snyrtileg eldhúsinnrétting. Baðherbergi er endurnýjað með glugga, baðkar með sturtuaðstöðu, handklæðaofn, flísar á gólfi og veggjum. Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni, rúmgott hjónaherbergi með fataskápum og tvö barnaherbergi, annað þeirra rúmgott. Gólfefni eru uppgerður linoleum-dúkur og flísar.

Góður 27,9 fm bílskúr fylgir eigninni, heitt og kalt vatn. Sérinnkeyrsla að bílskúr rúmar allt að fjóra bíla.

Í sameign er rúmgóð sérgeymsla með glugga, sérgeymsluskápur og sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi.

Framkvæmdir og viðhald - sameign

- Gólf í þvottahúsi og þurrkherbergi málað 2026.

- Endurnýjaðar frárennslis- og drenlagnir úti og inni undir plötu haustið 2025.

- Árið 2013 fóru fram miklar viðgerðir á húsinu, skv. tilboðsgögnum var m.a. þakjárn, pappi og þakrennur endurnýjaðar og sérstaklega hugað að loftun, vindskeið endurnýjuð, glerlistar endurnýjaðir og glugga- og hurðakarmar endurmálaðir, niðurfallsrör endurnýjuð, veggir háþrýstiþvegnir og sílanbaðaðir, sprungur vatnsþéttar og kíttisopfylling endurnýjuð.

Framkvæmdir og viðhald - séreign

- Andlitslyfting á eldhúsi 2021 (nýjar gólfflísar, tréplötur í borðkrók).

- Grindverk í innkeyrslu lagað og innkeyrsla malbikuð upp á nýtt að hluta 2020.

- Baðherbergi endurnýjað að mestu 2011.

- Nýjar raflagnir dregnar í 2003 og skipt um flesta rofa og tengla.

- Öll gerefti og gólflistar pússaðir upp og lakkaðir 2003.

Fyrirhugað/komið á tíma í sameign

- Fá tilboð í lagnavinnu í útveggjum á baðherbergjum með tilheyrandi raski innanhúss, samhljómur um að fara fljótt í það mál.

- Ganga frá hellum fyrir framan og aftan hús og tyrfa garð eftir drenframkvæmdir haustið 2025, samhljómur um að fara fljótt í það mál.

- Mála þak.

- Laga þá glugga sem þarf.

- Skipta um rafmagnstöflu, verið að leita tilboða en tímasetning liggur ekki fyrir.

Falleg sérhæð á eftirsóttum stað í gamla Vesturbænum. Stutt í leikskóla, skóla, sundlaug, kaffihús, verslanir og helstu þjónustu.

Nánari upplýsingar veitir Þórir Skarphéðinsson lögmaður og lgfs, í síma 8449591, tölvupóstur thorir@betristofan.is.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:

1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Kort af Ásvallagata 44

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu