HÚSASJÁ

Sólvallagata 41

01-0101 · 101 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
20 myndir

95 m²

Stærð

2

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1944

Byggingarár

270 m²

Lóð

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



49 dagar á sölu

sell

84.500.000 kr

894.180 kr/m²

Björt og vel skipulögð fjögurra herbergja íbúð á fyrstu hæð við Sólvallagötu 41 í gamla vesturbænum.

Um er að ræða fallega og vel skipulagða íbúð  sem samanstendur af þremur svefnherbergjum, rúmgóðri stofu, eldhúsi, baðherbergi ásamt geymslu í sameign.

Nánari lýsing:

Komið er inní anddyri/gang með eikarparket á gólfi.

Stórt hjónaherbergi á hægri hönd, með eikarparket á gólfi og stórum fataskáp.  Útgengt út á svalir til suðvesturs.

Barnaherbergi á vinstri hönd með stórum lausum skápum.  Eikarparket á gólfi.  Áður var þetta eldhúsið sem hefur verið fært nær stofunni.

Barnaherbergi við hlið hjónaherbergis með eikarparket á gólfi,

Rúmgóð stofa með tveimur inngöngum bæði frá gangi og frá eldhúsi.  Eikarparket á gófli.

Eldhús með góðri innréttingu, flísar milli efri og neðri skápa.  Pláss fyrir uppþvottavél í innréttingunni.  Góður borðkrókur.

Baðherbergi er nýlega tekið í gegn, flísalagt í hólf og gólf með innréttingu, upphengdu salerni, handklæðaofn og "walk-in" sturtu.

Aðeins þrjár íbúðir eru í húsinu.

Snyrtileg sameign, með sameiginlegu rúmgóðu þvottahúsi og sér geymslu.

Í garðinum er um 15fm. geymsluskúr sem er nýttur til að geyma hjól og vagna.

Fallegur og skjólgóður garður til suðvesturs.

Skipt var um þak 2015/2016 og rennur endurnýjaðar 2016.

Hverfið liggur mjög nálægt miðborg Reykjavíkur, sem gerir stutt í alla þjónustu, verslanir, veitingastaði og menningu.

Möguleiki að ganga eða hjóla í vinnu.  Vegna nálægðar við Hringbraut og aðrar stórar samgönguæðar er auðvelt að komast um borgina og í nágrenni eru góðar almenningssamgöngur.

Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:

Helgafell fasteignasala, sími 566 0000

Rúnar Þór Árnason, lgf., runar@helgafellfasteignasala.is

----------------------------------------------------------

Heimasíða Helgafells fasteignasölu

Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.

4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  92.380,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Kort af Sólvallagata 41

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð
Sólvallagata 41, 01-0101 | Húsasjá