Holtsgata 22
01-0301 · 101 Reykjavík



7 dagar á sölu
106.900.000 kr
926.343 kr/m²
Betri Stofan Fasteignasala og Þórir Skarphéðinsson lögmaður og lögg. fasteignasali kynna:
Glæsileg og mikið endurnýjuð 115,4 fm. fjögurra herbergja íbúð á eftirsóttum stað á 3. hæð við Holtsgötu 22 í 101 Reykjavík. Íbúðin er mikið endurnýjuð á vandaðan og smekklegan hátt. Opnað hefur verið á milli stofu og eldhúss, eldhúsinnrétting gerð upp, flísalagt á milli borðplötu og efri skápa, vönduð eldhústæki. Á gólfum er eikarparket og flísar. Hiti í gólfi á baði og í eldhúsi.
Nánari lýsing:
Forstofa/hol er opið flæðandi rými með tvöföldum skáp og bekk með skúffum. Gengið þaðan inn í aðrar vistarverur íbúðar.
Baðherbergi endurnýjað að miklu leyti s.s. hiti settur í flísalagt gólf, veggir í kringum baðkar og baðinnréttingu flísalagðir. Innfelldur skápur er einnig í vegg við baðkar sem er með sturtuaðstöðu.
Upphengt salerni, spegill og handklæðaofn.
Eldhús er endurnýjað að miklu leyti. LED lýsing var sett í innréttingu og vönduð Siemens tæki, s.s gashellur, eldavél og háfur. Flísalagt milli borðplötu og efri skápa sem og upp að lofti og í kringum gluggann í eldhúsi. Bjart opið og skemmtilegt rými. Hiti í gólfi.
Stofa og borðstofa er opið bjart rými út frá eldhúsi. Stórir gluggar sem gefa góða birtu inn. Hægt væri að opna frá stofu inn í eitt af barnaherbergjum íbúðar.
Barnaherbergi I er rúmgott og bjart herbergi með innbyggðum tvöföldum skáp og stórum glugga.
Barnaherbergi II er einnig rúmgott og bjart herbergi með stórum glugga.
Hjónaherbergi er með góðum skápum, rúmgott rými með útgengi út á svalir sem snúa út að sameiginlegum garði. Stórir gluggar sem gefa góða birtu inn.
Gólfefni íbúðar eru eikarparket og flísar.
Þvottahúsið er í sameign, rúmgott, pláss fyrir þvottavél og þurrkara.
Stór 13,6 fm. sérgeymsla með glugga í sameign.
Framkvæmdir í íbúð:
2016 - Baðherbergi endurnýjað, nýtt gólfefni á allri íbúð og eldhús gert upp. Rafmagn yfirfarið og nýir rofar og tenglar að hluta. Hiti settur í gólf á baðherbergi og eldhúsi.
Framkvæmdir í sameign:
2016 - Skipt um alla glugga og svalarhurðir á bakhlið.
2017 - Frárennslislagnir endurnýjaðar í kjallara
2020 - Drenlögn lögð meðfram bakhlið hússins.
2021 - Gluggar málaðir og skipt um þakrennur á framhlið hússins.
2022 - Múrviðgerðir og steining á allri bakhlið hússins. Skipt um þakrennur á bakhlið hússins. Svalir á 3. hæð endursteyptar. Viðgerðir og málun á svölum ásamt gluggaopum og vatnsbrettum. Þak var ryðvarið og málað ásamt því að gert var við skorstein.
Skemmtileg og mikið endurnýjuð eign í gamla Vesturbænum. Stutt í leikskóla, skóla, sundlaug, kaffihús, verslanir og helstu þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Skarphéðinsson lögmaður og lgfs, í síma 8449591, tölvupóstur thorir@betristofan.is.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna


















