HÚSASJÁ

Vesturgata 55

01-0301 · 101 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
22 myndir

49 m²

Stærð

1

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1957

Byggingarár

216 m²

Lóð

Garður

Svalir

Geymsla



6 dagar á sölu

sell

54.800.000 kr

1.109.312 kr/m²

Fasteignasalan TORG kynnir: Mikið endurnýjuð björt og rúmgóð 2ja herbergja íbúð á þriðju hæð í Sigvaldahúsi við Vesturgötu 55 í Reykjavík. Íbúðin sem er skráð 49,4 fm hefur verið mikið endurnýjuð á síðustu árum, ma. eldhús gólfefni á alrými og svefnherbergi, vatnslagnir innan íbúðar, stigagangur ofl. Alrýmið er bjart með stórum gluggum og rúmar eldhúsi, stofu og borðstofu. Skjólgóður sameiginlegur garður er á lóð til suðurs, sameiginleg vagna og hjólageymsla.  Stigagangur sameignar er mjög snyrtilegur. Frábær fyrsta eign.

Allar nánari upplýsingar veitir Lilja Ragnarsdóttir löggiltur fasteignasali í síma: 663-0464 eða lilja@fstorg.is

Nánari lýsing:

Forstofa: Komið er inn í rúmgóða forstofu með fatahengi og geymsluskáp, þaðan er gengið í önnur rými íbúðarinnar. Gólf er flísalagt.

Eldhús: Er nýlega endurnýjað. Falleg ljós innrétting með  Askáferð góðu skápa g skúffu plássi, span helluborði og bakarofni neðan við, uppþvottavél er innbyggð og borðplata er gegnheilt límtré.

Stofan: Er björt með stórum suður gluggum og rúmar borðstofu hún er opin við eldhúsið, þaðan er gengið út á suð/austur svalir.

Svefnherbergi: Er með tvöföldum opnum klæðaskáp með skúffum og fatahengi.

Baðherbergi: Er flísalagt að hluta, eldri innrétting er með handlaug og spegli ofan við, sturtuaðstöðu og tengi fyrir þvottavél. Góður geymslu skápur er á baðherbergi og opnanlegur gluggi. Búið er að kaupa nýjan glugga í alrými og verður hann settur í af seljendum 2026Skipt um hurð inn í íbúðina og sett eldvarnahurð frá Birgirsson 2024  Eldhús er nýlega endurnýjað á fallegan hátt ásamt öllum tækjum 2024Lagnir fyrir eldhúsvask og frárennsli frá eldhúsi endurnýjað 2024Gólfefni alrýmis og svefnherbergis endurnýjuð, fallegt eikar parket frá Birgisson 2024Innihurðir eru upprunalegar og hafa verið pússaðar og lakkaðar þannig að viðurinn fær að njóta sín 2024Stigagangur málaður og nýtt gólfteppi lagt á stiga 2024/# Svalagólf málað 2023Ofnalagnir voru endurnýjaðarí öllu húsinu 2024Samantekt: Hér er um að ræða bjarta mikið endurnýjaða 2ja herbergja íbúð í góðu fjölbýli. Góð staðsetning stutt frá miðbæ Reykjavíkur. stutt er á  göngu og hjólaleiðir við sjávarsíðuna. Frábær fyrsta eign. Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Lilja Ragnarsdóttir löggiltur fasteignasali í síma: 663-0464 eða lilja@fstorg.is

Fáðu frítt söluverðmat fyrir eignina þína hér.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Í lögum um fasteignakaup.argjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.

3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

5. Kaupandi eignarinnar greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt sem er 0,3% af endanlegu brunabótamati eignarinnar.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma

í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.

Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.

Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir

og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Kort af Vesturgata 55

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22